22. júní 2012

Urðunarstaður í Skaftárhrepp - Starfsleyfistillaga í auglýsingu

Sorphrúga - myndin tengist ekki efni fréttarinnar


Sorphrúga - myndin tengist ekki efni fréttarinnar

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Skaftárhrepps á Stjórnarsandi. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 200 tonnum af úrgangi á ári til urðunar, kurlunar og geymslu.

Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15, Kirkjubæjarklaustri, til 17. ágúst 2012.

Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 17. ágúst 2012.

Til baka
Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit með mengandi starfsemi fór í gegnum athugun IMPEL samtakanna.
Meira