Fréttir

Losun gróðurhúsalofttegunda

9.3.2010 : Losun og dreifing mengandi efna í Evrópu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Umhverfisstofnun Evrópu opnuðu nýlega vefsíðu með ítarlegri skrá um losun og dreifingu mengandi efna (PRTR). Upplýsingar eru aðgengilegar í gegnum landakort af Evrópu. Skráin geymir upplýsingar um magn og staðsetningu mengunar af völdum iðnaðar sem er losuð út í andrúmsloftið, vatn eða jarðveg. Upplýsingar um 91 efni frá yfir 24.000 fyrirtækjum í 65 iðnaðargreinum er að finna í skránni. Einnig eru upplýsingar um magn og gerð úrgangs sem eru flutt frá fyrirtækjum til meðhöndlunar innanlands sem utan í hverju landi fyrir sig. Lesa meira
 
Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma

9.3.2010 : Kynning faghópa rammaáætlunar

Verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til opins kynningarfundar í Skriðunni (Háskóla Íslands - Stakkahlíð) þriðjudaginn 9. mars kl. 14:00. Þar verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Lesa meira
 
Norræna umhverfismerkið Svanurinn

5.3.2010 : Fréttabréf Svansins

Svanurinn náði góðum árangri á árinu 2009. Alls bárust 16 umsóknir um Svansvottun til Umhverfisstofnunar árið 2009. Í tilefni 20 ára afmælisins undirbýr Umhverfisstofnun kynningarátak í byrjun maí til að efla umhverfismerkta vöru og þjónustu á Íslandi. Lesa meira
 
Gullfoss

4.3.2010 : Náttúruverndarviðurkenning

Í tilefni af 20 ára afmæli umhverfisráðuneytisins hefur Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ákveðið að heiðra minningu Sigríðar Tómasdóttur í Brattholti með því að afhenda náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar Tómasdóttur á degi umhverfisins sem haldinn er þann 25. apríl ár hvert. Viðurkenningin verður afhent einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Lesa meira
 
Tómatar

4.3.2010 : Námskeið um notkun varnarefna

Námskeið um notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju verður haldið á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands dagana 12. og 13. apríl 2010 í húsnæði LBHÍ (áður Rannsóknastofu landbúnaðarins) á Keldnaholti í Reykjavík. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota efni í X og A hættuflokkum og þeim sem ætla sér að stunda garðaúðun í atvinnuskyni.

Lesa meira
 
Cygnus

3.3.2010 : Ert þú í Svansmerkinu?

Norræna umhverfismerkið Svanurinn býður til hugarflugsfundar þann 11. mars vegna undirbúnings markaðsátaks í maí. Í tilefni 20 ára afmæli Svansins undirbýr Umhverfisstofnun markaðsátak til að efla umhverfismerkta vöru og þjónustu á Íslandi. Umhverfisstofnun leitar nú að samstarfsaðilum meðal smásöluverslana, heildsala, innflutningsaðila, leyfishafa og umsækjenda Svansins til að taka þátt í átakinu.

Lesa meira
 
Vistvæn innkaup

2.3.2010 : Ráðstefna um vistvæna innkaupastefnu

Umhverfisráðuneytið og fjármálaráðuneytið boða til ráðstefnu um vistvæn innkaup á Grand Hótel föstudaginn 5. mars 2010. Ráðstefnan er öllum opin og fer skráning fram á heimasíðu umhverfisráðuneytisins. Lesa meira
 
Urðunarstaður

2.3.2010 : Urðunarstaður við Uxafótarlæk

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Mýrdalshrepps við Uxafótarlæk, Mýrdalshreppi. Samkvæmt tillögunni verður Mýrdalshreppi heimilt að urða allt að 80 tonn af byggingarúrgangi og seyru á ári en starfsleyfi verður gefið út til sextán ára.

Lesa meira
 
Störf í boði

26.2.2010 : Landvarsla - sumarstörf 2010

Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum sumarið 2010 á eftirtalin svæði: Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, verndarsvæðið Mývatn og Laxá, Suðurland, Vesturland, Miðhálendi og sunnanverða Vestfirði. Lesa meira
 
boli1

22.2.2010 : Hreindýraveiðileyfi - biðlisti

Af þeim 3.737 gildu umsóknum sem bárust um hreindýraveiðileyfi nú í ár voru 33 á svokölluðum fimm skipta lista sem kynntur var hér á síðunni fyrir skömmu. Af þeim 33 fengu 16 af þessum lista úthlutun í útdrættinum þannig að eftir standa 17 og verða þeir teknir fram fyrir biðlista.

Lesa meira
 

Eldri fréttir







Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.