Fréttir
Námskeið um stjórnsýslu, lög og reglugerðir fyrir verðandi heilbrigðisfulltrúa
Umhverfisstofnun stendur árlega fyrir réttindanámskeiði fyrir verðandi heilbrigðisfulltrúa. Á námskeiðinu er farið í stjórnsýslu, lög og reglugerðir sem heilbrigðisfulltrúum ber að sjá um að sé framfylgt. Námskeiðið er haldið dagana 26. - 30. janúar nk. að Suðurlandsbraut 24.
Nánari upplýsingar veitir Haukur í síma 5912026 eða á haukurh@ust.is

