Fréttir
Gagarín hannar vefsjá fyrir þjóðgarðana
Umhverfisstofnun hefur undirritað samning við hugbúnaðarfyrirtækið Gagarín um gerð vefsjár fyrir þjóðgarðana. Með verkefninu er ætlunin að miðla fróðleik um sérstöðu, náttúrufar og sögu þjóðgarðanna á lifandi og aðgengilegan hátt. Gagarín mun annast viðmót, útlit og framsetningu á efninu.

