Fréttir

Baldvin Þorsteinsson
© Eyjólfur Magnússon

Strand Baldvins Þorsteinssonar – hlutverk og aðkoma Umhverfisstofnunar

10.3.2004

Miðvikudagur 10. mars kl. 9:20

Baldvin Þorsteinsson EA 10 strandaði rétt fyrir austan Skarðsfjöruvita aðfaranótt 9. mars eins og kunnugt er. Giftusamlega gekk að bjarga allri áhöfninni, 16 manns og er því næsta atriði að kanna björgun skipsins.

Í tengslum við slíka atburði hljóta að vakna spurningar um hugsanlega mengunarhættu vegna olíu og fleiri efna í skipinu og hver beri ábyrgð á þeim málum. Samkvæmt lögum er Umhverfisstofnun viðbragðsaðili vegna bráðamengunar sjávar utan hafnarsvæða og hefur stofnunin fylgst með málinu frá upphafi, verið í sambandi við Landhelgisgæslu Íslands og útgerðina og í viðbragðsstöðu ef eitthvað kemur upp á. Viðbragðsulltrúi frá stofnuninni hefur og farið á strandstað til að skoða aðstæður.

Skipið situr sem stendur skorðað og í vari frá mestu öldunni. Ekki er talin hætta á því að olía leki úr skipinu og heldur Umhverfisstofnun því að sér höndum eins og er. Samkvæmt upplýsingum eigenda eru um borð u.þ.b. 415 tonn af flotaolíu, 20 tonn af smurolíu og glussa auk ríflega 1500 tonna loðnuafla.

Sjá einnig:

Viðbrögð við vá ? hlutverk og verkefni Umhverfisstofnunar við bráðamengun sjávar

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.