Fréttir

Umhverfisdagurinn í Skaftafelli

26.4.2004

Það var fjölmennt lið Öræfinga (50% íbúa) sem bauð nýjan starfsmann þjóðgarðsins í Skaftafelli velkomin í Öræfasveit. Kaffi og kökur voru í boði þjóðgarðsins á degi umhverfisins 25. apríl. Stella Hrönn Jóhannsdóttir sagði Öræfingum frá sér og sinni fjölskyldu, en hún er frá bænum Keflavík á Hegranesi í Skagafirði. Faðir hennar er Jóhann Már Jóhannsson, sauðfjárbóndi og söngvari, enda bróðir stórsöngvarans Kristjáns Jóhannssonar. Karl Guðmundsson, unnusti Stellu greindi einnig frá sínum uppruna, en hann er uppalinn á Stafafelli í Lóni og á Höfn. Karl mun starfa sem verkamaður í þjóðgarðinum í sumar.

Umhverfisdagurinn í Skaftafelli

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.