Fréttir

Svanurinn hreiðrar um sig í Laugardalnum

Farfuglaheimilið í Reykjavík hlýtur norræna umhverfismerkið Svaninn

22.6.2004


Föstudaginn 18. júní 2004 veitti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra Farfuglaheimilinu í Reykjavík norræna umhverfismerkið Svaninn. Þeir einir fá að nota Svansmerkið sem uppfylla strangar kröfur um gæði og takmörkun umhverfisáhrifa.Afhending Svansins

Farfuglaheimilið í Reykjavík er eitt af fyrstu farfuglaheimilunum sem hlýtur Svaninn en fjölmörg hótel á norðurlöndunum eru svansmerkt, þar á meðal eitt hér á landi, Hótel Eldhestar í Hveragerði.

Á Farfuglaheimilinu í Reykjavík hefur á undanförnum árum verið unnið þýðingarmikið þróunarstarf á sviði gæða- og umhverfismála. Starfið byggir á sterkum grunni Bandalags íslenskra farfugla (BÍF) sem alla tíð hefur lagt áherslu á umhverfis- og menningarmál í sinni stefnu og starfi, má hér nefna að Farfuglaheimilið í Reykjavík fékk Umhverfisviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2002 og BÍF hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs árið 2003.
Föstudaginn 18. júní veitti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra Farfuglaheimilinu í Reykjavík norræna umhverfismerkið Svaninn. Þeir einir fá að nota Svansmerkið sem uppfylla strangar kröfur um gæði og takmörkun umhverfisáhrifa.Afhending Svansins

Farfuglaheimilið í Reykjavík er eitt af fyrstu farfuglaheimilunum sem hlýtur Svaninn en fjölmörg hótel á norðurlöndunum eru svansmerkt, þar á meðal eitt hér á landi, Hótel Eldhestar í Hveragerði.

Á Farfuglaheimilinu í Reykjavík hefur á undanförnum árum verið unnið þýðingarmikið þróunarstarf á sviði gæða- og umhverfismála. Starfið byggir á sterkum grunni Bandalags íslenskra farfugla (BÍF) sem alla tíð hefur lagt áherslu á umhverfis- og menningarmál í sinni stefnu og starfi, má hér nefna að Farfuglaheimilið í Reykjavík fékk Umhverfisviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2002 og BÍF hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs árið 2003.

Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigríði Ólafsdóttur rekstrarstjóra Farfuglaheimilisins þessa viðurkenningu við hátíðlega athöfn. Lúðrasveitin Svanur lék nokkur lög.
Jafnframt undirrituðu forsvarsmenn Farfuglaheimilisins og Orkuveituveitu Reykjavíkur samning um samstarf á sviði menningar og umhverfismála í sumar.

Athöfnin fór fram á Farfuglaheimilinu að Sundlaugavegi 34.Afhending Svansins

Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigríði Ólafsdóttur rekstrarstjóra Farfuglaheimilisins þessa viðurkenningu við hátíðlega athöfn. Lúðrasveitin Svanur lék nokkur lög.
Jafnframt undirrituðu forsvarsmenn Farfuglaheimilisins og Orkuveituveitu Reykjavíkur samning um samstarf á sviði menningar og umhverfismála í sumar.

Athöfnin fór fram á Farfuglaheimilinu að Sundlaugavegi 34.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.