Fréttir

Kiran Pacific
http://www.spanishshipping.com

Strand fyrir utan Straumsvíkurhöfn

26.6.2004

Tyrkneska súrálflutningaskipið Kiran Pacific strandaði á skeri 3.3 sjómílur (6 km.) norðvestur af Straumsvíkurhöfn í gærkvöldi. Alls er 21 maður um borð í skipinu, allir frá Tyrklandi. Skipið er talið nokkuð stöðugt á skerinu og því ekki óttast um að áhöfnin sé í hættu. Varðskip kom  á vettvang í morgun og er áhöfn þess að kanna aðstæður og ástand skipsins.

Kiran Pacific var að koma frá Bandaríkjunum með 45 þúsund tonn af súráli sem flytja átti til Straumsvíkur.  Í skipinu eru 456 rúmmetrar af svartolíu, 52 rúmmetrar af dísilolíu og 31 rúmmetri af smurolíu.  Skipið er 21968 brúttótonn og 193 metrar að lengd.  Talið er að 3 göt séu á sjótönkum framarlega í skipinu.  Ekki er vitað um göt á olíutönkum og ekki hefur orðið vart við mengun. 

Fulltrúar Landhelgisgæslunnar, Siglingastofnunar og Umhverfisstofnunar fylgjast grannt með framvindu mála og taka sameiginlega ákvörðun um aðgerðir eftir því sem þurfa þykir



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.