Starfsleyfi í gildi

Starfsleyfi í gildi

Starfsleyfi fyrirtækja sem geta haft í för með sér mengun

Öll fyrirtæki þurfa starfsleyfi. Áður en fyrirtæki er stofnað þarf að athuga hvort gerð sé krafa um sérstakt starfsleyfi til fyrirtækjareksturs á viðkomandi sviði. Samkvæmt reglugerð 785/1999 gefa Umhverfisstofnun og heilbrigðisnefndir út starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem haft getur í för með sér mengun. Umhverfisstofnun hefur einnig það hlutverk að samræma skilyrði í starfleyfum fyrir atvinnuvegina.

- Upplýsingar um samræmd starfsleyfisskilyrði -

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Umhverfisstofnunar til að nálgast starfsleyfi sem ekki eru birt hér að ofan.

Starfsleyfisskyldum atvinnurekstri er samkvæmt reglugerð skipt í tvennt. Annars vegar er atvinnurekstur, sem Umhverfisstofnun vinnur starfsleyfi fyrir og hefur eftirlit með og hins vegar atvinnurekstur sem heilbrigðisnefndir sveitarfélaga vinna starfsleyfi fyrir og hafa eftirlit með. Allur atvinnurekstur, sem sérstaklega tengist umferð vélknúinna ökutækja svo sem bifreiðaverkstæði, bílaþvottastöðvar, smurstöðvar, bensínafgreiðslustöðvar og fleira er upp talinn í reglugerðinni meðal þess atvinnurekstrar, sem heilbrigðisnefnd fjallar um. Það er ekki þar með sagt að Umhverfisstofnun komi ekki nærri slíkum atvinnurekstri, því stofnunin hefur yfirumsjón með starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og vinnur fyrir þær leiðbeiningar sem stuðst er við, við útgáfu starfsleyfa.

Starfsleyfi sem Umhverfisstofnun hefur umsjón með:

 







Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.