TilraunaglösEfnaframleiðsla í heiminum hefur vaxið úr um 1 milljón tonna árið 1930 í ríflega 400 milljón tonn á ári og fer enn vaxandi. Afleiðingin er sú að allt í kringum okkur má finna má margvísleg efni og efnasambönd eins og t.d. í þvottaefnum, byggingarvörum, fatnaði, leikföngum og húsgögnum. Mörg þessara efna finnast einnig í lofti, vatni, jarðvegi og jafnvel mönnum og dýrum þar sem þau hafa safnast fyrir í gegnum árin. Efni geta haft hættulega eiginleika, verið ertandi, ætandi og jafnvel eitruð og hefur verið sýnt fram á tengsl ýmissa efna við ákveðna sjúkdóma.

  Kynntu þér REACH

Ríkisstjórnin samþykkti í lok mars 2009 stefnu um vistvæn innkaup ríkisins. Til þess að standast strangar kröfur innkaupastefnunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla kröfur um lágmörkun þeirra umhverfisáhrifa sem hljótast af framleiðslu vörunnar eða af þjónustunni. Einfaldasta leiðin til að uppfylla umhverfisskilyrði sem sett eru fram í opinberum útboðum skv. vistvænum innkaupum er því að vera með vöru eða þjónustu Svansvottaða. 

  Kynntu þér Svaninn

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið