Fólkvangar
Böggvisstaðafjall
29.júlí 1994
nr. 432
Auglýsing
um stofnun fólkvangs í Böggvisstaðafjalli.
Að tillögu umhverfismálanefndar Dalvíkur og að fengnu samþykki bæjarráðs Dalvíkur hefur [Umhverfisstofnun] ákveðið að landsvæði í Böggvisstaðafjalli verði lýst fólkvangur, sbr. eftirfarandi lýsingu, með skírskotun til 26. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd.
Mörk fólkvangsins eru að vestan girðing frá egg fjallsins og niður í Brimnesá, u.þ.b. 1 km vestan við Selhól. Að sunnan girðing nærri merkjum Böggvisstaða og Hrafnsstaða og til fjalls. Að austan mörk byggðarinnar samkvæmt aðalskipulagi og að norðan fylgja mörkin núverandi gilvegi og í Brimnesá.
Eftirfarandi reglur gilda um fólkvanginn:
1. Gangandi fólki er frjáls umferð um svæðið enda virði það almennar umgengisreglur og varist að skerða gróður
og valda óþarfa truflun á dýralífi.
2. Meðferð skotvopna er óheimil á svæðinu nema yfir rjúpnaveiðtímann.
3. Notkun berjatína er bönnuð á svæðinu.
4. Umferð ökutækja innan svæðisins er aðeins heimil á akvegum.
5. Óheimilt er að beita búpeningi innan fólkvangsins enda verður svæðið innan fjárheldrar girðingar.
6. Svæðið skal skipulagt til almennrar útivistar.
7. Hvers konar mannvirkjagerð og jarðrask er háð leyfi [Umhverfisstofnunar] hverju sinni.
8. Losun alls sorps og úrgangs er bönnuð innan fólkvangsins.
9. Umhverfismálanefnd Dalvíkur fer með stjórn og eftirlit fólkvangsins.
10. Til undanþágu frá reglum þessum þarf leyfi umhverfismálanefndar Dalvíkur og [Umhverfisstofnunar].
Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum laga nr. 47/1971, um náttúruvernd.
Ráðuneytið er samþykkt stofnun fólksvangsins og tekur stofnun hans gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðingum.
Umhverfisráðuneytið, 29. júlí 1994
Össur Skarphéðinsson.
________________
Ingimar Sigurðsson

