Fólkvangar
Neskaupstaður
Stj.tíð. B, nr. 333/1972.
Sérpr. nr. 130.
Auglýsing
um fólkvang Neskaupstaðar
[Umhverfisstofnun] hefur tjáð ráðuneytinu, að engar athugasemdir hafi borist, vegna fyrirhugaðrar friðlýsingar fólkvangs Neskaupstaðar, sbr. auglýsingu í 32. tbl. Lögbirtingablaðs 10. maí 1972, en þar eru greind mörk fólkvangsins og reglur um hann.
[Umhverfisstofnun] hefur hinn 4. ágúst 1972 samþykkt friðlýsingu fólkvangsins fyrir sitt leyti. Ráðuneytið er samþykkt friðlýsingunni og birtist hún hér með með skírskotun ti 26., 32. og 33. gr. laga nr. 47/1971, um náttúruvernd, og tekur friðlýsingin gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum. Að því er varðar reglur um mörk fólkvangsins o. fl., vísast til fylgiskjalsins.
Í menntamálaráðuneytinu, 29. nóvember 1972.
Magnús T. Ólafsson.
_______________
Birgir Thorlacius
Kort af verndarsvæði
Fylgiskjal.
Auglýsing frá [Umhverfisstofnun].
Að tillögu Náttúruverndarnefndar Neskaupstaðar og að fengnu samþykki bæjarstjórnar Neskaupstaðar hefur [Umhverfisstofnun ákveðið að friðlýsa svæðið, sem sýnt er á með fylgjandi korti, sem fólkvang samkv. 26. gr. laga nr. 47/1971.
Takmörk svæðisins eru þessi:
Að innan við Stóralæk, sem fellur til sjávar rétt utan við Vita. Frá efstu drögum Stóralækjar beint upp í eggjar og þaðan eftir kaupstaðarmörkum út í Nípukoll og niður í sjó á Níputá (Flesjartanga). Hið neðra markast svæðið af sjó, en friðlýsingin taki til grynninga meðfram ströndinni út frá umræddum takmörkum.
Um hið friðlýsta svæði verða settar eftirfarandi reglur:
1 gr.
Fólkvangur Neskaupstaðar er friðland, þar sem eingöngu gangandi fólki er frjáls umferð, enda varist það að
skerða gróður og valda óþarfri truflun á dýralífi. Óheimilt er að raska föstum bergmyndunum á svæðinu, og ætlast er til góðrar umgengni af vegfarendum í hvívetna.
2.gr.
Umferð vélknúinna ökutækja um fólkvanginn er stranglega bönnuð. Einnig er bönnuð meðferð skotvopna á svæðinu og undan strönd þess nema til eyðingar meindýra eftir sérstöku leyfi Náttúruverndarnefndar Neskaupstaðar.
3. gr.
Öll manvirkjagerð og jarðefnataka er óheimil á svæðinu, en bætt verður úr spjöllum, sem þegar hafa verið unnin innan þess og þar um fylgt fyrirmælum Náttúruverndarnefndar Neskaupstaðar. Einnig er nefndinni heimilt að láta lagfæra gönguleiðir á svæðinu og gera aðrar ráðstafanir, er þurfa þykir, til að greiða götu vegfarenda.
4. gr.
Bannað er að beita búpeningi innan hins friðlýsta svæðis.
5. gr.
Eftirlit með fólkvanginum er í höndum Náttúruverndarnefndar Neskaupstaðar og þeirra aðila, sem hún kann að kveðja þar til.
Samkvæmt 26. gr. laga nr. 47/1971 skal athugasemdum við þessa friðlýsingu komið á framfæri við [Umhverfisstofnun] eigi síðar en 8 vikum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Reykjavík, 11. apríl 1972
[Umhverfisstofnun],

