Friðlönd
Hólmanes
Stj.tíð. B, nr. 393/1973.
Sérprentun nr. 182
Auglýsing
um fólkvang og friðland á Hólmanesi.
[Umhverfisstofnun] hefur tjáð ráðuneytinu, að engar athugasemdir hafi borist vegna fyrirhugaðrar friðlýsingar fólkvangs og friðlands á Hólmanesi, sbr. auglýsingu í 40. tbl. Lögbirtingablaðs 30. maí 1973, og hefur ráðið samþykkt friðlýsinguna fyrir sitt leyti.
Ráðuneytið er samþykkt friðlýsingunni, og með skírskotun til laga nr. 47/1971, um náttúruvernd, tekur friðlýsingin gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum. Reglur um friðlýsingu þessa eru í meðfylgjandi fylgiskjali.
Í menntamálaráðuneytinu, 12. desember 1973.
Magnús T. Ólafsson.
______________
Knútur Hallsson.
Kort af verndarsvæði
Fylgiskjal.
Auglýsing frá [Umhverfisstofnun].
Að tillögu sveitarstjórnar Eskifjarðarhrepps hefur [Umhverfisstofnun] ákveðið á fundi sínum 7. maí 1973 að friðlýsa Hólmanes og hluta Hólmaháls í Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarhreppi. Er eignarhluti Eskifjarðarhrepps fólkvangur samkvæmt 26. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, en eignarhluti ríkisins í Reyðarfjarðarhreppi friðland samkvæmt 24. gr sömu laga.
Mörk svæðisins eru þessi:
Hið efra um Langhamra ofan núverandi þjóðvegar. Eskifjarðarmegin liggja þau úr enda Langhamra í hreppamörk rétt vestan Völvuleiðis og þaðan niður eftir melrinda stystu leið til sjávar utan við ytri Bólklettseyri. Reyðafjarðarmegin eru mörkin frá innri enda Langhamra utan Illukeldu þvert á þjóðveg niður í beitargirðingu Hólmajarðar og fylgja henni til sjávar við Hörganes. Hólmarnir í landi Hólmajarðar fylgja hinu friðlýsta svæði svo og grynningar og flesjar við ströndina innan marka þess.
Samræmdar reglur, sem gilda um allt svæðið eru þessar:
1. Gangandi fólki er frjáls umferð, enda virði það almennar umgengnisreglur og varist að skerða gróður og valda
óþarfri truflun á dýralífi. Meðferð skotvopna er óheimil á svæðinu. Æðarvarp verði nytjað og njóti verndar á
hefðbundinn hátt.
2. Mannvirkjagerð er óheimil á svæðinu og allt jarðrask er þar bannað utan eðlilegt viðhald þjóðvegar, enda fylgi því
ekki efnistaka á svæðinu sjálfu. Vélknúnum tækjum má aðeins aka eftir þjóðvegi.
3. Sauðfjárbeit verður látin óátalin á svæðinu fyrst um sinn, enda verði ekki um aukningu beitar að ræða frá því
sem tíðkast hefur síðustu ár. Verði breyting á og svæðið girt og friðað fyrir beit skal ákvörðun þar að lútandi
tilkynnt ábúanda á Hólmum með tveggja ára fyrirvara.
4. Undanþágur frá reglum þessum eru háðar samþykki [Umhverfisstofnunar].
Umsjón með svæðinu er í höndum þriggja manna. Skulu sveitarstjórnir Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarhrepps tilnefna einn mann hvor, en Umhverfisstofnun hinn þriðja og er hann formaður.
Starfstími nefndarinnar er milli sveitarstjórnarkosninga.
Kostnaður, sem leiðir af stofnun og rekstri hins friðlýsta svæðis, greiðist að jöfnu af ríki og Eskifjarðarhreppi.
[Umhverfisstofnun]

