Náttúruvætti
Helgustaðarnáma, Suður-Múlasýsla
Stj.tíð B, nr. 525/1975.
Auglýsing
um friðlýsingu silfurbergsnámu að Helgustöðum, Suður-Múlasýslu.
Samkvæmt heimild í 22. gr. laga um náttúruvernd nr. 47/1971 hefur [Umhverfisstofnun] fyrir sitt leyti ákveðið að friðlýsa sem náttúruvætti silfurbergsnámuna að Helgustöðum í Helgustaðahreppi í Suður-Múlasýslu ásamt nánasta umhverfi.
Mörk náttúruvættisins:
mynda ferhyrning eftir línum sem hugsast dregnar um vörður sem hlaðnar eru yfir föstum merkjum á staðnum og nær svæðið frá þjóðvegi og skammt upp fyrir námuna.
Um svæðið gilda þessar reglur:
1. Aðeins gangandi fólki er þar heimil för í lögmætum tilgangi.
2. Hvergi má raska þar bergmyndunum og stranglega er bannað að hrófla við silfurbergi og flytja það út af svæðinu.
3. Hvers kyns jarðrask er bannað nema sérstakt leyfi [Umhverfisstofnunar] komi til.
[Umhverfisstofnun] getur falið ábúanda á Helgustöðum eða öðrum eftirlit með náttúruvættinu.
Heimilt er [Umhverfisstofnun] að leyfa Náttúrufræðistofnun Íslands eða öðrum opinberum söfnum takmarkaða töku silfurbergssýna í námunni undir eftirliti.
Um viðurlög við brotum á ákvæðum þessum fer að náttúruverndarlögum.
Ráðuneytið er samþykkt friðlýsingunni sem tekur gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum.
Menntamálaráðuneytið, 1. desember 1975.
Vilhjálmur Hjálmarsson
_______________
Birgir Thorlacius

