Tegundir og búsvæði

Friðlýstar plöntur

Friðlýstar plöntur
--------------------------------------------------------------------------------

Með auglýsingu nr. 184/1978 er 31 plöntutegund friðlýst.
Lagt er bann við að slíta af þeim sprota, blöð, blóm eða rætur, traðka á þeim, grafa þær upp eða skerða á annan hátt.

Sérprentun nr. 342

 

Auglýsing

um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

 

            Samkvæmt tillögu [Umhverfisstofnun] og heimild í 23. gr. laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, hefur verið ákveðið að friðlýsa eftirtaldar plöntutegundir þar sem þær vaxa villtar hér landi.

1.    Dvergtungljurt (Botrychium simplex).

2.    Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii).

3.    Skeggburkni (Aspelnium septentrionale).

4.    Svartburkni (Aspelnium trichomanes).

5.    Klettaburkni (Aspelnium viride).

6.    Tunguskollakambur (Blechnum spicant var. Fallax).

7.    Hlíðarburkni (Cryptogramma crispa).

8.    Burstajafni (Lycopodium clavatum).

9.    Knjápunktur (Sieglingia decumbens).

10. Heiðarstör (Carex heleonastes).

11. Trjónustör (Carex flava).

12. Fitjasef (Juncus gerardi).

13. Villilaukur (Allium oleraceum).

14. Ferlaufasmári (Paris quadrifolia).

15. Eggtvíblaðka (Listera ovata).

16. Tjarnblaðka (Polygonum amphibium).

17. Línarfi (Stellaria calycantha).

18. Flæðarbúi (Spergularia Salina).

19. Melasól með hvítum og bleikum blómum (Papaver raticatum ssp. Stefanssonii).

20. Vatnsögn (Grassula aquatica).

21. Hreistursteinbrjótur (Saxifraga foliolosa).

22. Blóðmura (Potentilla erecta).

23. Þyrnirós (Rosa pimpinellifolia).

24. Glitrós (Rosa vosagiaca).

25. Súrsmæra (Oxalis acetosella).

26. Tjarnabrúða (Callitriche brutia).

27. Skógfjóla (Viola riviniana).

28. Davíðslykill (Primula egaliksensis).

29. Lyngbúi (Ajuga pyramidalis).

30. Hveraaugnfró (Euphrasia calida).

31. Mýramaðra (Galium palustre).

            Samkvæmt þessu er lagt bann við að slíta af þessum plöntum sprota, blöð, blóm eða rætur, traðka á þeim, grafa þær upp eða skerða á annan hátt.

            Með þessari auglýsingu er jafnframt felld úr gildi auglýsing nr. 130/1967 um sama efni.

Menntamálaráðuneyti, 25. apríl 1978.

Vilhjálmur Hjálmarsson.

Birgir Thorlacius


Með vísan til heimildar í lögum nr. 44/1999 um náttúruvernd hefur umhverfisráðherra heimild til að friðlýsa jurtir

eða dýr sem miklu skipir að ekki verði útrýmt

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.