Mengunarmál
Mengunarmál
Svið umhverfisgæða

Mengunarvarnir hjá Umhverfisstofnun felast í umsjón með eftirliti og framkvæmd laga um mengunarvarnir á sjó og landi. Í lögum nr. 7/1998 og reglugerðum tengdum umhverfismálum, segir að heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafi eftirlit með mengun og mengandi starfsemi undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar.
Svið umhverfisgæða sér um að vakta loftgæði, vatnsgæði og önnur umhverfisgæði. Sviðið sér um umsagnir um málefni sem tengjast mengunarvörnum og ástandi umhverfisins. Sviðið hefur ennfremur eftirlit með mengun frá atvinnurekstri sem Umhverfisstofnun veitir starfsleyfi, en það eru u.þ.b. 100 fyrirtæki á landinu öllu. Árlega berast sviði umhverfisgæða hundruð erinda til afgreiðslu eða umsagnar, þar með talið umsagnir um lagafrumvörp frá Alþingi, drög að reglugerðum, umhverfismatsskýrslur, skipulagsmál sveitarfélaga, starfsleyfi á vegum heilbrigðisnefnda, og skýrslur margskonar skipa þar veigamikinn sess. Þessar umsagnir bætast ofan á starfsleyfisgerð, reglugerðarsmíð, eftirlit, vöktun og gagnavinnslu, erlent samstarf um mengunarvarnir og fleiri föst verkefni sviðsins.
Nokkur meginverkefni eru:
- Yfirumsjón með mengunarmálum og mengunarvarnareftirliti á Íslandi
- Leyfisveitingar til atvinnurekenda og samræming starfsleyfisskilyrða
- Vöktun, rannsóknir og úrvinnsla gagna um ástand umhverfisins hvað varðar mengun
- Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis er varða mengunarvarnir, umhverfismerkingar og önnur umhverfismál
- Afgreiðsla erinda, umsagnir og skýrslugerð.

