Sorphirða sveitarfélaga

Móttökugámur fyrir pappír

Sorphirða sveitarfélaga

Upp úr 1993 stofnuðu allmörg sveitarfélög byggðasamlög um meðhöndlun úrgangs, m.a. til að ná hagræðingu í rekstri. Sorpsamlög meðhöndla sameiginlegan úrgang frá hlutaðeigandi sveitarfélögum á þjónustusvæðinu og jafnvel utan þess. Þar sem vegalengdir sem úrgangur er fluttur um til sameiginlegra förgunarstaða sorpsamlaga hafa aukist til muna er flutningur orðinn stór ef ekki stærsti kostnaðarþátturinn í úrgangsmeðhöndlun víða á landinu.

Förgunarstöðum hefur fækkað allverulega en þær hafa stækkað. Voru um 60 förgunarstaðir skráðar á Íslandi árið 1990, nú eru þeir 36, þ.e. 6 brennslustöðvar (þ.m.t. urðunarstaðir fyrir óbrennalegan úrgang og ösku frá brennslustöðvunum), 23 urðunarstaðir fyrir heimilis- og rekstrarúrgang og 7 svokallaðar tippar fyrir óvirkan úrgang. Á mynd 3 má sjá staðsetningu viðurkenndra móttökustöðva (förgunarstaða) á landinu í byrjun ársins 2003.

Yfirlit um sveitarfélög/sorpsamlög og íbúafjölda á þeirra þjónustusvæðum er að finna í viðauka 3 við landsáætlun um meðhöndlun úrgangs.

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.