Gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar
Gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar
Hvað eru gróðurhúsaáhrif?
Jörðinni má á ýmsan hátt líkja við gróðurhús. Lofthjúpur jarðar gegnir svipuðu hlutverki og glerið í gróðurhúsinu. Hann hleypir greiðlega í gegnum sig sýnilegri sólargeislun og heldur inni miklum hluta varmageislunarinnar sem berst frá yfirborði jarðar. Þannig dregur lofthjúpurinn úr varmatapi frá jörðinni. Þessi áhrif lofthjúpsins á hitastig og loftslag á jörðinni eru nefnd gróðurhúsaáhrif. Án gróðurhúsaáhrifa væri meðalhitastig á jörðinni í kringum - 19°C í stað +14°C, eins og það er nú. Gróðurhúsaáhrifin eru þannig forsenda fyrir lífi á jörðinni í núverandi mynd.

