GHL losun

Nýjar tölur til loftslagssamnings SŢ

Umhverfisstofnun hefur tekiđ saman nýjar tölur um útstreymi gróđurhúsalofttegunda fyrir loftslagssamning SŢ. Útreikningar ná yfir öll ár frá 1990 til 2006. Helstu niđurstöđur eru ţćr ađ útstreymi gróđurhúsalofttegunda á Íslandi jókst um 14% frá 2005 til 2006 og hefur aukist um 24% frá 1990.

Úr fréttatilkynningu umhverfisráđherra 23. apríl 2008
Heildarlosun gróđurhúsalofttegunda (ghl) jókst úr 3.710 ţús. tonnum áriđ 2005 í 4.235 ţús. tonn áriđ 2006. Ţađ er aukning um 525.000 tonn, eđa 14,2%. Ţetta kemur fram í nýjum tölum sem Umhverfisstofnun hefur tekiđ saman fyrir skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuđu ţjóđanna í Bonn. Ţetta er mun meiri aukning en spár hafa gert ráđ fyrir. Ţórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráđherra hefur óskađ eftir nýrri spá frá Umhverfisstofnun og mati á ţví hvort líkur séu á ađ Ísland fari fram úr skuldbindingum sínum skv. Kýótó-bókuninni.

Stćrsta hluta aukningarinnar má skýra međ aukinni losun frá áliđnađi, sem jókst um 404.000 tonn milli 2005 og 2006, eđa um 89%. Aukningin er öll frá álveri Norđuráls á Grundartanga og tengist stćkkun álversins ţar. Mestu munar um losun flúorkolefna (PFC), sem fór úr 18 ţús. tonnum CO2-ígilda 2005 í 319 ţús. tonn 2006. Ţessi losun fellur undir almennar losunarheimildir Íslands samkvćmt Kýótó-bókuninni, en ekki íslenska ákvćđiđ svokallađa.

Losun ghl frá samgöngum jókst um 146.000 tonn milli áranna 2005 og 2006, eđa um 17%, ađ langmestu leyti vegna vegasamgangna. Umhverfisráđherra óskar eftir ţví ađ Umhverfisstofnun skođi losun frá samgöngum og beri saman losun á mann á Íslandi og í öđrum ríkjum sem bera skuldbindingar í loftslagsmálum.

Losun frá sjávarútvegi dróst saman um 113.000 tonn á milli áranna 2005 og 2006, eđa um rúm 15%. Samdráttur var í losun bćđi frá fiskiskipaflotanum og fiskimjölsverksmiđjum. Losun frá landbúnađi jókst um 33.000 tonn, eđa um tćp 7%. Skipting á losun eftir uppsprettum er ađ finna á kökuriti hér ađ neđan, auk línurits yfir ţróun í losun frá stóriđju, samgöngum, sjávarútvegi og landbúnađi 1990-2006. Losunartölur frá 2007 liggja enn ekki fyrir. Binding kolefnis međ skógrćkt og landgrćđslu nam um 358.000 tonnum áriđ 2006.

Losun ghl jókst um rúm 24% frá 1990 til 2006. Á skuldbindingartímabili Kýótó-bókunarinnar, 2008-2012, má losun ghl á Íslandi ekki aukast meira en 10% miđađ viđ losun áriđ 1990. Ađ auki hefur Ísland sérstaka heimild til aukningar á losun koldíoxíđs frá stóriđju, íslenska ákvćđiđ.

Auk ţess ađ óska eftir nýrri losunarspá frá Umhverfisstofnun, mun ráđherra bođa fulltrúa álfyrirtćkjanna til fundar til ţess ađ rćđa skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum. Árangur hefur náđst á undanförnum árum í minnkun á losun PFC og hefur losunin hérlendis síđustu ár veriđ međ ţví lćgsta sem ţekkist á tonn af framleiddu áli. Yfirleitt er nokkur aukning á losun í upphafi starfstíma álvera eđa ţegar nýjar framleiđslueiningar eru teknar í notkun. Á fundinum međ álfyrirtćkjunum verđur fariđ yfir ţessa losun, hvort hćtta sé á ţví ađ hún verđi meiri en spáđ hafđi veriđ og til hvađa ráđstafana sé hćgt ađ grípa ef í ţađ stefnir.

GHL losun

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 GHL 1990

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

GHL 2006 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 






Leit


Útlit síđu:

ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica heimasiđugerđheimasiđugerđ - nánari upplýsinga á heimasíđu eplica.