Mengunarvarnabúnaður

Rotþrær og siturlagnir

Meðferð fráveituvatns í dreifbýli

 

Skólp er mengunarvaldur allsstaðar þar sem því er veitt út í umhverfið. Skólpmengun felst í uppsöfnun lífræns úrgangs sem er saurmengaður og inniheldur mikið magn örvera. Skólp, sem ekki er rétt meðhöndlað, mengar vatn og getur verið hættulegt heilsu manna og dýra. Aldrei má leiða skólpvatn beint úr rotþró út í umhverfið. Skólpvatn á að leiða frá rotþró í siturlögn á svipaðan hátt og lýst er á myndinni.

Gerð er krafa um tveggja þrepa hreinsun á skólpi frá hýbýlum manna. Tveggja þrepa hreinsun felst í rotþró (fyrsta þrep) og siturlögn (annað þrep) sem beisla úrgangsefni í skólpinu og stuðla að niðurbroti á mengunarefnum áður en þau berast út í umhverfið.

Á Íslandi er gerð krafa um þriggja hólfa rotþrær, en fleiri en þrjú hólf eru óþörf. Í rotþró má veita frárennsli frá salernum, eldhúsum og þvottahúsum. Hitaveituvatn úr ofnakerfum og heitum pottum þarf ekki að fara í rotþró.

Siturlögn er götuð þannig að næst rotþrónni eru götin færri, en fleiri eftir því sem lengra dregur. Götin eru á botni rörsins og allt upp að miðju rörhæðar.

Myndin að neðan sýnir hvernig rotþró skilur óuppleyst efni frá vatni á þann hátt að þyngri efnin setjast á botninn (botnlag) en fita og önnur léttari efni fljóta upp (flotlag).

Ítarefni:

Leiðbeiningar um rotþrær og siturlagnir (PDF)

Leiðbeiningar um tæmingu rotþróa (PDF)

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.