Mengun hafs og stranda

Alda_vid_strond-SGisla_copy

Mengun hafs og stranda

1.10.2004

Lífríki hafsins er mikilvæg uppspretta fæðu fyrir mannkynið og sjósókn er gjarnan mikilvægasta atvinnugrein samfélaga við ströndina og jafnvel heilu þjóðanna. Mengun hafsins getur haft víðtæk áhrif. Breyting á efnasamsetningu og lífríki hafsins hefur ekki bara áhrif á veiðar og afkomu fólks heldur í raun allt líf á jörðinni. Mörg mengunarefni eru alvarleg ógn við heilsu þeirra sem neyta sjávarfangs sem mengað er þessum efnum.

Strendur eru mikilvægar vegna mikillar framleiðni í fjöru og á grunnsævi. Mikill fjöldi fugla sækir fæðu sína í fjöru, sumar tegundir fugla halda til í fjöru að vetri til og dreifast svo upp á land á sumrin. Lífríki fjörunnar er viðkvæmt fyrir hvers konar mengun á öllum árstímum þar sem fjaran er virk allan ársins hring.

Umhverfisstofnun hefur umsjón með vörnum gegn mengun sjávar og stranda. Starfsemin felst í framkvæmd laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda og reglugerða þar að lútandi.

Ítarlegri upplýsingar má fá með því að velja viðeigandi krækju á vallistanum hér til vinstri og hér er hægt að nálgast umfjöllun varðandi þessa nýju upplýsingaveitu.

Efni um málefni hafsins

8.7.2010 Ný reglugerð um kjölfestuvatn og umfjöllun um losun kjölfestuvatns

5.2.2010 Bylting í eftirliti með mengun

19.12.2006 Strand Wilson Muuga

18.04.2006 Fyrirlestur: Hafið okkar

15.01.2006 Ný reglugerð um tryggingar skipa og starfsemi á landi

8. 12.2005 Breyting á reglugerð nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur
sem getur haft í för með sér mengun

23.09.2005 Ný reglugerð um takmörkun á notkun skaðlegra gróðurhindrandi efna og/eða búnaðar á skip

25.08.2005 Verklagsreglur um aðkomu opinberra aðila þegar hvali rekur á land

12.10.2004 Ný reglugerð um umskipun olíu á rúmsjó

01.10.2004 Uppfærðar vefsíður um mengun hafs og stranda

01.10.2004 Lög nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda taka gildi.

01.10.2004 Mengun hafs og stranda - 4. heftið í ritröðinni Upplýsingar og Staðreyndir.

30.09.2004 Ný reglugerð um móttöku á úrgangi frá skipum

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.