Vatnatilskipunin

Vatnatilskipunin

Vatnatilskipunin var samþykkt inn í EES samninginn í september 2007 og staðfest með þingsályktunartillögu í desember 2007. Vatnatilskipunin kallar á lagabreytingar hér á landi og er undirbúningur lagasetningarinnar hafinn.

Tilgangur vatnatilskipunarinnar er að setja ramma um vernd yfirborðsvatns á landi, árósavatns, strandsjávar og grunnvatns sem:

  • kemur í veg fyrir frekari afturför, verndar og bætir ástand vatnavistkerfa og að því er varðar vatnsþörf þeirra, vistkerfa á landi og í votlendi sem eru beint háð vistkerfum í vatni.
  • stuðlar að sjálfbærri notkun vatns sem byggir á langtímavernd vatnslinda sem eru fyrir hendi.
  • miðar að aukinni vernd og umbótum á vatnsumhverfi, m.a. með sérstökum ráðstöfunum til að draga jafnt og þétt úr sleppingu, losun og leka forgangsefna og til að binda endi á eða stöðva í áföngum sleppingu, losun og leka hættulegra forgangsefna.
  • tryggir að dregið sé jafnt og þétt úr mengun grunnvatns og kemur í veg fyrir frekari mengun þess.
  • stuðlar að því að milda áhrif af völdum flóða og þurrka.

Dímon

Tilskipunin gerir ráð fyrir samþættingu í stjórn vatnamála og að fjalla á heildstætt um málefni vatns innan vatnasvæða. Til að hægt sé að koma slíku stjórnkerfi á þarf að flokka vatnasvið og lífríki í viðkomandi vötnum, skilgreina álagsþætti og meta ástand vatna eftir ákveðnu fyrirfram skilgreindu flokkunarkerfi. Gera þarf úttekt á stöðunni eins og hún er í dag, gera vöktunaráætlanir og skila skýrslum í samræmdan evrópskan gagnagrunn.

Við framkvæmd tilskipunarinnar eiga stjórnvöld að hvetja alla hagsmunaaðila til virkrar þátttöku, einkum hvað varðar stjórnunaráætlanir fyrir vatnasviðaumdæmi.



 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.