Meðhöndlun úrgangs
Úrgangur
Nútímasamfélagi fylgir mikill úrgangur. Magn úrgangs vex hröðum skrefum hér á landi sem og í öðrum löndum og kallar á aðgerðir stjórnvalda til að lágmarka úrgang og aukna endurnýtingu og endurnotkun. Þrátt fyrir að nýting úrgangsefna hafi tvöfaldast síðastliðin 10 ár hefur ekki tekist að draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar. Þann úrgangur sem ekki nýtist þarf að urða eða brenna á ábyrgan hátt, þannig að óæskileg áhrif á umhverfið séu sem minnst.
Umhverfisstofnun gaf út landsáætlun um meðhöndlun úrgangs þann 27. apríl s.l., í samræmi við lög nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Landsáætlunin er fyrsta heildstæða áætlun um meðhöndlun úrgangs sem gildir fyrir allt landið. Í henni koma fram tímasett og magnsett markmið sem uppfylla á í áföngum á gildistíma áætlunarinnar, sem er frá árinu 2004 til ársins 2016. Markmið landsáætlunarinnar er að draga markvisst úr myndun úrgangs, auka endurnýtingu og endurnotkun og minnka magn úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar. Auk þess á landsáætlunin að vera vegvísir til sveitarfélaga sem fara með framkvæmd úrgangsmála hér á landi. Jafnframt á landsáætlunin að vera til leiðbeiningar við svæðisbundna áætlanagerð sem sveitarfélög eiga að semja og staðfesta fyrir 1. apríl 2005.
Eftir tímaröð eru markmið landsáætlunarinnar eftirfarandi:
- Frá og með 1. janúar 2006 skal endurnotkun og endurnýting vera minnst 85% af úr sér gengnum ökutækjum (ennfremur skulu minnst 80% af meðalþyngd ökutækis endurnotuð eða endurunnin).
- Frá og með 16. júlí 2006 er óheimilt a.ð urða kurluð dekk.
- Frá og með 1. desember 2006 þarf að meðhöndla minnst 4 kg af raftækjum á hvern íbúa á ári á viðeigandi hátt.
- Frá og með 1. janúar 2009 skal lífrænn heimilis- og rekstrarúrgangur sem berst til urðunarstaða hafa minnkað niður í 75% af heildarmagni (miðað við þyngd) þess lífræna úrgangs sem til féll árið 1995.
- Fyrir 16. júlí 2009 þurfa starfandi urðunarstaðir að hafa lagað sig að þeim kröfum sem gerðar eru, sbr. reglugerð 738/2003 um urðun úrgangs, eða loka ella.
- Frá og með 1. júlí 2013 skal lífrænn heimilis- og rekstrarúrgangur sem berst til urðunarstaða hafa minnkað niður í 50% af heildarmagni (miðað við þyngd) þess lífræna úrgangs sem til féll árið 1995.
- Frá og með 1. janúar 2015 skal endurnotkun og endurnýting úr sér genginna ökutækja vera minnst 95% (ennfremur skulu minnst 85% af meðalþyngd ökutækis endurnotuð eða endurunnin).
- Frá og með 1. júlí 2020 skal lífrænn heimilis- og rekstrarúrgangur sem berst til urðunarstaða hafa minnkað niður í 35% af heildarmagni (miðað við þyngd) þess lífræna heimilisúrgangs sem til féll árið 1995.
Til að ná markmiðum landsáætlunarinnar þarf að auka endurnýtingu lífræns úrgangs, umbúðaúrgangs og raftækjaúrgangs. Miðað við óbreytt afköst brennslustöðva er fyrirsjáanlegt að auka þurfi hér á landi endurnýtingu lífræns úrgangs með öðrum aðferðum, t.d. jarðgerð og/eða gasgerð. Aðrir úrgangsflokkar sem landsáætlunin tekur til falla undir lög nr. 162/2002 um úrvinnslugjald. en árið 2002 var úrvinnslusjóður settur á fót og er úrvinnslugjald lagt á ýmsar vörur til að greiða fyrir endurnýtingu eða förgun þegar þær verða að úrgangi: spilliefni, hjólbarða, úr sér gengin ökutæki, samsettar drykkjarumbúðir og heyrúlluplast. Gera má ráð fyrir að úrvinnslugjald verði lagt á fleiri úrgangsflokka í framtíðinni.
Hér að neðan eru tilvísanir í frekara efni um úrgang og meðferð hans
- Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2004-2016
- Þróun í meðhöndlun úrgangs 1970-2003
- Eyðublað fyrir móttöku og ráðstöfun úrgangs 2008 (Excel skjal) - leiðbeiningar um útfyllingu eyðublaðsins (PDF)
- Tafla um magn og tegund úrgangs á Íslandi frá 1995-2005 (Hagstofa Íslands)
- Skýrsla framkvæmdastjórnar Evrópuráðsins um meðhöndlun úrgangs (á ensku)
- Líkön til að spá fyrir um magn og tegund úrgangs við breytilegar forsendur (á ensku)
- Leiðbeiningar Umhverfisstofnunar Bretlands um aðgerðir til að lágmarka úrgang á vinnustað (á ensku)
- Pilot study on packaging waste in Iceland (á ensku)
- Biodegradable municipal waste management in Europe: Strategies and instruments, European Environment Agency, 2001 (á ensku)
- Fjármögnun og fjárhagslegar hvatir fyrir minnkun úrgangs til endanlegrar förgunar ? 20 útfærð dæmi (á ensku)
- Gerð svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs
- Notkun á tættum hjólbörðum sem byggingarefni
- Notkun á tættum hjólbörðum

