Náttúruvernd


Náttúruvernd

4.2.2004


Maðurinn ber ábyrgð á náttúru jarðar.Tæknin gerir kleift að breyta á augabragði sköpunarverki sem tók milljónir ára að móta. Með aðgát, fyrirhyggju og aðgerðum í náttúruvernd má nýta gæði jarðar án þess að vinna henni óbætanlegt tjón.

Á Náttúruauðlindasviði Umhverfisstofnunar er haft eftirlit með náttúru landsins og umsjón með náttúruverndarsvæðum. Unnið að undirbúningi að friðlýsingu svæða, höfð umsjón með gerð verndaráætlana fyrir náttúruverndarsvæði og skráningu náttúruminja. Hjá Umhverfisstofnun má nálgast  upplýsingar um ástand náttúruverndarsvæða og þar fara fram álitsgerðir vegna meiri háttar framkvæmda. Stofnunin ber ábyrgð á rekstri þjóðgarða og sér um rekstur gestastofa. Landverðir sjá um eftirlit og fræðslu á náttúruverndarsvæðum. Stofnunin hefur frumkvæði í náttúruverndarmálum, bendir á hættur fyrir lífríkið og metur ástand svæða í óbyggðum. Stofnunin veitir sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum ráðgjöf, en einnig aðhald.

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.