Náttúrvætti

Víti í Öskju
Víti í Öskju
© Snævarr Guðmundsson

Askja

9.3.2004

Sigdæld og eldstöðvar í Dyngjufjöllum. Botn Öskju er þakinn úfnum apalhraunum. Í suðausturhorninu er Öskjuvatn sem varð til við jarðfall í eldsumbrotum 1875.

Sigdæld og eldstöðvar í Dyngjufjöllum. Botn Öskju er þakinn úfnum apalhraunum. Í suðausturhorninu er Öskjuvatn sem varð til við jarðfall í eldsumbrotum 1875. Öskjuvatn er dýpsta stöðuvatn landsins, rúmlega 200 m á dýpt. Miklar eldstöðvar eru í Öskju og þeirra á meðal er gígurinn Víti. Vatnið í Víti er heitt og þar er vinsælt að fara í bað. Eldsumbrot í Öskju hafa verið nokkur á sögulegum tíma og áttu þau m.a. sinn þátt í að hrekja fólk frá Austurlandi á síðustu öld. Síðast gaus Askja 1961 þegar Vikrahraun rann. Bandarískir geimfarar voru þjálfaðir þá þessu svæði vegna þess að landslag þótti svipa til landslags á tunglinu. Stórbrotin og mikilfengleg náttúra Öskju verður ógleymanleg öllum þeim sem hana sækja heim og óhætt er að segja að hér sé einstakur staður á jörð. Friðlýst 1978.

Askja er innan Vatnajökulsþjóðgarðs sem hefur með umsjón, rekstur og leyfisveitingar á svæðinu að gera.

Árið 1875, varð öflugt eldgos í suðurhorni Öskju, þar sem nú er Öskjuvatn. Um 2,5 km3 af gosefnum ruddust upp úr gossprungunni á nokkrum klukkutímum. Þarna varð svipuð atburðarás og myndaði Öskju. Þak kvikuþróarinnar undir suðurhluta öskjunnar tók að síga niður eftir gosið og þegar því lauk var sigið orðið um 250 metrar. Sigdældin fylltist smám saman af vatni og til varð Öskjuvatn, sem er um 220 metra djúpt, dýpsta stöðuvatn á Íslandi. Á árabilinu 1922-1929 urðu nokkur lítil eldgos við jaðra þessarar nýju sigdældar. Einnig gaus í Vikraborgum árið 1961. Enn er nokkur hreyfing í Öskju og botn hennar sígur nokkuð. Eitt er víst að þetta einstaka náttúrufyrirbæri er ?í fullu fjöri" og mun í framtíðinni af og til minna á að landið er í sífelldri mótun.

Ódáðahraun
Ódáðahraun, naflar

Ódáðahraun, norðan Vatnajökuls, er um 5.000 km2 stórt víðerni sem afmarkast af Bárðardalsdrögum í vestri og Jökulsá á Fjöllum í austri og af Mývatnsöræfum í norðri. Þar eru nokkrar gróðurvinjar, svo sem Surtlu- og Marteinsflæða suðvestan til, Suðurárbotnar norðan til en austan megin eru Grafarlönd og Herðubreiðarlindir. Um mitt hraunið liggur gosbelti úr suðvestri frá Dyngjufjöllum.

Askja í Dyngjufjöllum var friðlýst sem náttúruvætti 1978 og er ein sérstæðasta jarðmyndunin í Ódáðahrauni. Dyngjufjöll byggðust við gos undir ísaldarjökli en megineldstöðin Askja myndaðist í lok ísaldar við stórfellt gos en við það tæmdist kvikuþró sem er undir Dyngjufjöllum. Eftir gosið seig þak kvikuþróarinnar. Eftir varð djúp lægð er síðar tók við hraunum úr eldgosum er urðu á jöðrumsigdældarinnar. Botn Öskju sem nefnd er eftir öskjulögun sinni er nú í um 1.100 metra hæð yfir sjávarmáli.

Víti í Öskju
Víti

Víti er sprengigígur sem varð til í lok gossins 1875. Vatn hefur safnast í Víti og er hitastig þess breytilegt, allt eftir því hve mikið leysingarvatn rennur í það, en hitinn er jafnan yfir 30° C. Dýpt þess er mest í miðjunni, liðlega 8 metrar. Vinsælt er að baða sig á þessum einstaka stað en vert er að vara ferðamenn við, ef þeir hyggja á bað í Víti, að stígurinn niður er mjög háll í votviðri og verulegur hiti er í leðjunni í botninum sérstaklega við austurbakkann. Hætta getur verið á að grjót falli úr börmunum.
Á göngu inn að Víti er vert að gefa eins konar kerjum, eða gryfjum, í vikurbreiðunni við stíginn gætur. Ef skyggnst er ofan í gryfju sem ekki er vatn í þá gefur að líta íslag undir um 80-100 sm þykku vikurlaginu. Þetta er snjór frá 1875 (!)

Saga

Þeir sem telja sig þekkja landið fullyrða að magnþrungnasti staður á Íslandi sé Askja í Dyngjufjöllum. HHerðubreið, snjóalagún er ekki einungis stórbrotið náttúrufyrirbæri heldur á hún sér afar dularfulla sögu og harmþrungna. Árið 1907 hélt leiðangur þýskra vísindamanna inn í Öskju til rannsókna. Leiðangursstjóri var Walther von Knebel jarðfræðingur en auk hans voru þeir Hans Spethmann jarðfræðinemi og Max Rudloff málari. Skemmst er frá að segja að þeir Knebel og Rudloff munu hafa drukknað við rannsóknir í vatninu hinn 10. júlí 1907. Segldúksbátskrifli var kennt um dauða þeirra. Hans Spethmann var við jarðfræðiathuganir í fjöllunum norðaustan vatnsins daginn sem slysið varð. Vorið 1908 kom Ina von Grumbkow, unnusta Walthers von Knebels, hingað til lands til þess að leita ummerkja um þá félaga því að bæði voru sögusagnir á kreiki um hvarf þeirra og eins trúði hún því ekki að þeir gætu hafa horfið algerlega sporlaust. Eftir nokkra dvöl og leit við Öskjuvatn að unnusta sínum hvarf hún á braut. Hugsun hennar og orð á kveðjustundinni við vatnið lýsa þeim áhrifum sem umhverfið hefur á ferðalanginn:Herðubreið, Ódáðahraun

„Fáum dauðlegum mönnum er búin jafn konungleg gröf og þeim báðum, sem hér hvíla í þessu tígulega, bjarta fjallavatni. Konungar einir þarfnast eilífðar aðseturs í gröf sinni, þar sem þeir eru bornir til jarðneskrar hvíldar. Skyldu þeir, eftir mannlegum skilningi, njóta meira næðis sem hvíla í gullnum steinþróm Escorial-hallarinnar eða grafhýsum egypskra faraóa? Hér ríkir friður dýpstu alvöru á björtum sumardögum og dimmum vetrarstundum - öld eftir öld."

Áður en Ina yfirgaf Öskju hlóð hún og fylgdarlið hennar minnisvarða um þá félaga sem stendur enn. Hann er örskammt norðvestan við Víti og í honum er gestabók.
Við vesturbakka vatnsins, skammt frá Mývetningahrauni, er annar minnisvarði, varða með marmaraplötu í, kveðja frá austurrískum leiðangri sem stundaði rannsóknir sunnan Vatnajökuls 1950, til minningar um Walther von Knebel og Max Rudloff, en þar telja sumir að þeir hafi lagt í feigðarförina. Þangað er um 3-4 klst. ganga frá Víti.

Gönguleiðir

Frá bílastæði í Vikraborgum er um 35 mínútna ganga inn að Öskjuvatni. Gönguleiðin er stikuð og auðveld yfirferðar.

Askja, göngukortFrá gistiaðstöðunni við Drekagil er mögulegt að ganga vestur yfir Dyngjufjöllin að Víti. Sú ganga tekur um 2-3 klst. aðra leiðina. Varast ber að leggja á fjöllin nema veðurútlit sé mjög gott því að skjótt skipast veður í lofti og skýjabakkar setjast fyrst á þessa fjallstoppa og í Öskjuop. Ef ganga á umhverfis Öskjuvatn þá verður að hafa í huga að hringferðin tekur um 8-12 klst. Ganga verður uppi á eggjum Þorvaldstinds, sem er sunnan við vatnið, en ekki er mögulegt að ganga við vatnsborðið, því að nær stöðugt grjóthrun er úr hlíðum fjallsins. Laus gosefni, aðallega vikur, eru víða í skorningum og sneiðingum á gönguleiðinni uppi á Þorvaldstind sem gerir hana seinfarna og þunga til göngu.

Ef ganga á að Bræðrafelli frá Drekagili þarf að ætla sér 7-9 klst. Leiðin er stikuð og byrjar hún nokkru suðaustan við jaðar Vikrahrauns en það er ófært yfirferðar.
Drekagil, gangaFrá bílastæði við Vikraborgir liggur stikuð leið þvert um Öskjuop þar sem það er þrengst, vestur um Jónsskarð í skála Ferðafélags Akureyrar í Dyngjufjalladal. Gangan þangað tekur 9-11 klst. Varist einnig að leggja í þá göngu nema veðurútlit sé mjög gott.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.