Þjóðgarðar

gljúfur nærmynd
Jökulsárgljúfur
Mynd frá þjóðgarði
© Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir

Þjóðgarðar

Þjóðgarðar okkar eru svæði sem eru það sérstæð um landslag, gróðurfar og sögu, að ástæða þykir að varðveita þau og veita almenningi aðgang að þeim til fræðslu og ánægju.

Þjóðgarðarnir eru alltaf opnir en þjónusta við gesti er aðeins starfrækt hluta úr ári.

Þjóðgarðurinn Þingvellir var friðlýstur með sérlögum 1930, sem helgistaður og sameiningartákn íslensku þjóðarinnar og er á Heimsminjalista Sameinuðu Þjóðanna vegna gildis síns fyrir heimsmenninguna.

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður í júní 2008. Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir um 12.000 ferkílómetra svæði eða um 12 prósent af flatarmáli landsins og er þar með stærsti þjóðgarður Evrópu.

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var friðlýstur 2001. Hann er eini þjóðgarðurinn sem nær milli fjalls og fjöru.

Samstarf þjóðgarða

Europarc, lógoUmhverfisstofnun er aðili að samstarfi þjóðgarða í Evrópu, Europarc federation. Markmið samtakanna er að stuðla að miðlun þekkingar varðandi rekstur friðlýstra svæða.
Samtökin skiptast í undirdeildir þannig að starfið verður markvissara og Europarc Nordic-Baltic deildin sem við tökum þátt í telur rúmlega 100 þjóðgarða.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.