Losun og dreifing mengandi efna í Evrópu
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Umhverfisstofnun Evrópu opnuðu nýlega vefsíðu með ítarlegri skrá um losun og dreifingu mengandi efna (PRTR). Upplýsingar eru aðgengilegar í gegnum landakort af Evrópu. Skráin geymir upplýsingar um magn og staðsetningu mengunar af völdum iðnaðar sem er losuð út í andrúmsloftið, vatn eða jarðveg. Upplýsingar um 91 efni frá yfir 24.000 fyrirtækjum í 65 iðnaðargreinum er að finna í skránni. Einnig eru upplýsingar um magn og gerð úrgangs sem eru flutt frá fyrirtækjum til meðhöndlunar innanlands sem utan í hverju landi fyrir sig.
Lesa meira
Kynning faghópa rammaáætlunar
Verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til kynningarfunda. Næstu fundir verða haldnir laugardaginn 13. mars á Selfossi kl. 11:00 og á Kirkjubæjarklaustri kl. 17:00. Aðrir fundir verða auglýstir síðar. Þar verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði.
Lesa meira
Fréttabréf Svansins
Svanurinn náði góðum árangri á árinu 2009. Alls bárust 16 umsóknir um Svansvottun til Umhverfisstofnunar árið 2009. Í tilefni 20 ára afmælisins undirbýr Umhverfisstofnun kynningarátak í byrjun maí til að efla umhverfismerkta vöru og þjónustu á Íslandi.
Lesa meira
Náttúruverndarviðurkenning
Í tilefni af 20 ára afmæli umhverfisráðuneytisins hefur Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ákveðið að heiðra minningu Sigríðar Tómasdóttur í Brattholti með því að afhenda náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar Tómasdóttur á degi umhverfisins sem haldinn er þann 25. apríl ár hvert. Viðurkenningin verður afhent einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.
Lesa meira
Námskeið um notkun varnarefna
Námskeið um notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju verður haldið á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands dagana 12. og 13. apríl 2010 í húsnæði LBHÍ (áður Rannsóknastofu landbúnaðarins) á Keldnaholti í Reykjavík. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota efni í X og A hættuflokkum og þeim sem ætla sér að stunda garðaúðun í atvinnuskyni.
Lesa meira- Ert þú í Svansmerkinu?
- Ráðstefna um vistvæna innkaupastefnu
- Urðunarstaður við Uxafótarlæk
- Landvarsla - sumarstörf 2010
- Hreindýraveiðileyfi - biðlisti
- Um 2700 fylgdust með útdrætti í beinni
- Starf lögfræðings
- Öskudagur í Mývatnssveit
- Förgun tóbaks frá Póllandi stöðvuð
- Úthlutunarreglur hreindýraveiðileyfa
- Skinney-Þinganes
- Gjaldskrá Umhverfisstofnunar
- Bylting í eftirliti með mengun
- Carbon Recycling International
- Hvítabjörn felldur
- Hvítabjörn í Þistilfirði
- Hreindýrakvóti
- Skilavefurinn er opinn
- Borgarafundur á Vopnafirði
- Náttúra, menningarminjar og atvinnusköpun
- Landvarðanámskeið
- 2010 - Ár líffræðilegrar fjölbreytni
- Viðvörun vegna kraftaverkalausnarinnar MMS
- Prentsmiðjan Oddi fær Svansvottun
- Ný fiskimjölsverksmiðja HB Granda Vopnafirði
- Niðurstaðan í Kaupmannahöfn
- Ísland með ESB í loftslagsmálum
- Málþing um náttúruvernd - myndband
- COP 15 - losun gróðurhúsalofttegunda
- Hreindýraarður

