Forsíðugreinar

Kiran Pacific
http://www.spanishshipping.com

Súrálflutningaskipið laust af strandstað

28.6.2004

Skipið losnaði af skerinu um kl. 14:20 en þá var háflóð og aðstæður því góðar. Lofti var dælt inn í tanka skipsins og síðan dró dráttarbáturinn Hamar frá Hafnarfirði það á flot. Skipið liggur nú við akkeri út af Straumsvík meðan skoðað er hvort djúprista skipsins sé of mikil til að sigla því inn í Straumsvíkurhöfn. Ekki hefur orðið vart við olíuleka eða mengun frá skipinu.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.