Forsíðugreinar

Umhverfisdagurinn_2004_024

Nýr umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, heimsótti starfsfólk Umhverfisstofnunar í morgun

16.9.2004

Kl. 8:30 í morgun kom nýr ráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir í heimsókn til Umhverfisstofnunar.

Davíð Egilson forstjóri Umhverfisstofnunar og starfsfólk Umhverfisstofnunar tók á móti Sigríði Önnu og bauð hana velkomna til starfsins.  

Sigríður Anna Þórðardóttir þakkaði góðar móttökur og sagðist ánægð með takast á við ný og spennandi verkefni með góðu fólki.

Starfsfólk Umhverfisstofnunar hlakkar til að hefja störf með nýjum ráðherra og vonar að hún megi njóta gæfu og gengis í starfi.

Þótt margt gott hafi áunnist í tíð fyrri ráherra þá er mikið verk framundan í umhverfismálum og mikilvægt fyrir Umhverfisstofnun að eiga sterkan bakhjarl í umhverfisráðherra.

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.