Forsíðugreinar
Ný reglugerð um takmörkun á notkun skaðlegra gróðurhindrandi efna og/eða búnaðar á skip
Umhverfisráðuneytið hefur gefið út reglugerð um takmörkun á notkun skaðlegra gróðurhindrandi efna og/eða búnaðar á skip, nr. 824/2005. Með reglugerðinni er innleidd reglugerð Evrópusambandsins nr. 782/2003 um bann við því að nota lífræn tinsambönd á skip.
Notkun efnisins tríbútíltin (TBT) í botnmálningu skipa sem eru minni en 25 m að lengd hefur verið bönnuð frá árinu 1990 en með reglugerðinni er bannið útfært yfir á öll íslensk skip og önnur skip sem koma hingað til hafnar. Nú þegar er bannað að bera á eða bæta málningu sem inniheldur TBT, og samkvæmt reglugerðinni verður frá og með 1. janúar 2008 annað hvort að vera búið að fjarlægja TBT málningu af ytra byrði skipa ellegar hún kyrfilega hulin.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með ákvæðum reglugerðarinnar, en Siglingastofnun Íslands er eftirlitsaðili með búnaði og gerð skipa.
Grundvöllurinn að setningu reglugerðarinnar eru mikil og langvarandi skaðleg áhrif TBT á lífríki hafsins, ekki síst skeldýr. Sem dæmi um áhrif má nefna hrun ostrustofnsins við Frakklandsstrendur á 8. áratugnum, og vansköpun og síðar ófrjósemi nákuðungs víða um höf, m.a. hér við Íslandsstrendur. TBT er mikilvirkt efni sem hefur verið mikið notað í botnmálningu skipa í því skyni að draga úr vexti lífvera á byrðing skipa. Lífverurnar draga úr hraða skipa og auka eldsneytiseyðslu þess og því skiptir miklu fyrir skipaútgerðir að koma í veg fyrir þetta vandamál.
Í nóvember 2001 var samþykktur alþjóðlegur samningur um takmörkun á notkun skaðlegra gróðurhindrandi efna og/eða búnaðar (International Convention of the Control of Harmful Anti-Fouling Systems – AFS-convention). Um er að ræða rammasamning sem ætlað er að vera vettvang fyrir takmörkun á notkun hvers konar skaðlegum efnum, tækni eða búnaðar sem er eða verður notaður á byrðing skipa. Hægt verður að bæta við samninginn nýjum viðaukum ef fram koma efni og/eða búnaður sem sýnt er að hafi slík skaðleg áhrif á umhverfi sjávar að ástæða sé til að takmarka notkun þess á heimsvísu. Sem stendur er einungis um að ræða bann við notkun lífrænna tinsambanda (tríbútíltin – TBT) í botnmálningu skipa.
Evrópusambandið ýtti mjög á um samþykkt samningsins og í því skyni að hvetja aðildarríki EB til að staðfesta hann setti Evrópuþingið og ráðið reglugerð um bann við notkun lífrænna tinsambanda á skip. Með samþykkt sameiginlegu EES-nefndarinnar var ákveðið að EB-reglugerðin skyldi öðlast gildi hér á landi og fylgir hún því með sem viðauki við íslensku reglugerðina.

