Forsíðugreinar

Útblástur frá bifreið

Mótvægisaðgerðir gegn svifryki

24.10.2007

"Það er því mjög óæskileg, sé horft til sótmengunar, sú þróun, sem þegar virðist hafin, að innflutningur á gömlum díselbílum aukist. Nokkuð er flutt inn af stórum bílum, sem menga mikið, sem sett hafa verið á mjög há notkunargjöld í Evrópu. Því fást þessir bílar á góðu verði þar. Jafnvel eru dæmi um, að reynt hafi verið að flytja inn bíla, sem ekki fást skráðir í Evrópu því að þeir uppfylla ekki mengunarkröfur þar."

Hér er vitnað í skýrsluna Mótvægisaðgerðir gegn svifriki, Aðgerðir gegn sóti frá díselvélum og malbiksögnum frá nagladekkjum, en hún var unnin af faghópi sem falið var að koma með nánari útfærslu á tillögum starfshóps umhverfisráðuneytisins um aðgerðir til að draga úr rykmengun vegna aukinnar umferðar á höfuðborgarsvæðinu, Sú skýrsla nefnist Staða og þróun svifryksmengunar á höfuðborgarsvæðinu og mögulegar leiðir til úrbóta (nóvember 2006). Það var því  ákveðið af samgönguráðuneyti og umhverfisráðuneyti, að setja á fót óformlegan hóp fagaðila til að fjalla um tæknilega þætti og koma með nánari útfærslu á tillögum starfshópsins. Í hópnum voru auk fulltrúa frá ráðuneytunum fulltrúar frá Vegagerðinni, Umferðarstofu og Umhverfisstofnun.

Eftirtaldir aðilar skipuðu vinnuhópinn:

Hermann Sveinbjörnsson, umhverfisráðuneyti

Eiríkur Bjarnason, samgönguráðuneyti

Lárus Sveinsson, Umferðarstofu

Þór Tómasson, Umhverfisstofnun

Þorsteinn Jóhannsson, Umhverfisstofnun

Þórir Ingason, Vegagerðinni

Hópnum var einnig ætlað að fjalla um aðra þætti, sem koma beint og óbeint fram í tillögum starfshópsins, s.s. um notkun og gerð nagla í hjólbarða og skoða, hvort ástæða sé til, að eftirlit heilbrigðiseftirlitsins með hjólbarðaverkstæðum ætti að taka til þyngdar nagla, ásamt því að fjalla um aðra tæknilega þætti, sem geta haft áhrif á mengun.

Skýrslu faghópsins má lesa hér.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.