Svanurinn


Norræna umhverfismerkið Svanurinn

Norræna umhverfismerkið Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.

Svanurinn hefur skapað sér ótvíræðan sess sem mikilvægasta og áreiðanlegasta umhverfismerkið á Norðurlöndunum, með mikla útbreiðslu og traust meðal neytenda.

Svanurinn auðveldar neytendum að velja gæðavörur sem eru vistvænni en flestar sambærilegar vörur á markaðnum. Með því að velja umhverfismerktar vörur hvetjum við fyrirtæki til að framleiða vistvænar vörur þar sem hönnun, framleiðsla og markaðssetning uppfylla ströngustu umhverfis- og gæðaskilyrði.

Með því að efla vistvæna vöruþróun ýtir Svanurinn undir sjálfbæra þróun samfélagsins þar sem komandi kynslóðir hafa jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum.

Því er ánægjulegt að æ fleiri neytendur velja Svansmerkt og æ fleiri fyrirtæki Svansmerkja vörur sína og þjónustu!

Svanurinn - kynningarmyndband

Ekki hika við að hafa samband við starfsmann Svansins hjá Umhverfisstofnun varðandi nánari upplýsingar, t.d. með tölvupósti á netfangið svanurinn@ust.is

Einnig eru ítarlega upplýsingar um Svaninn á hinum Norðurlöndunum á vefsíðum

Svansins í Danmörku: www.ecolabel.dk, Svíþjóð: www.svanen.nu (uppl. einnig á ensku) og Noregi: www.ecolabel.noSvanur1

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.