Flokkun og merking
Á næstunni verða innleiddar gagngerar breytingar á reglum um flokkun og merkingu efna. Ný flokkun efna verður þá tekin upp og nýjar merkingar líta dagsins ljós. Breytingarnar taka gildi í áföngum og fyrstu áhrifin verða þau að listinn yfir hættuleg efni sem birtur er í reglugerð nr. 236/1990 hættir að gilda og þess í stað verður vísað í nýja lista.
Innlendur framleiðandi, innflytjandi eða umboðsmaður er ábyrgur fyrir því að umbúðir hættulegra efna séu rétt merktar. Söluaðaðilum er óheimilt að selja hættulegar vörutegundir, ef umbúðir eru vanmerktar.
Vörur sem eru flokkaðar hættulegar eiga að vera merktar á íslensku. Gerð er krafa um varnaðarmerkingar og er þeim ætlað að sýna þá hættu sem af efnunum stafar og vera leiðbeinandi um notkun og geymslu auk þess að gefa upplýsingar um hvað gera skuli ef slys ber að höndum.
Varnaðarmerki ásamt hættu-og varnaðarsetningum mynda saman hættuflokkun vörunnar. Varnaðarmerki vísa til hættunnar sem af efninu getur stafað. Þau benda á í hverju hættan felst, t.d. eldfimt eða ertandi. Þau eru 10 talsins en eitt og sama efni getur fengið fleiri en eitt varnaðarmerki. Hættusetningar eru síðan notaðar til að tilgreina nánar hættulega eiginleika vörunnar t.d. ertir augu. Varnaðarsetningar leiðbeina um meðhöndlun, notkun og varúðarráðstafanir.
Reglur um merkingu eru samræmdar á öllu evrópska efnahagssvæðinu.
Upplýsingar um reglur um nýja flokkun og merkingu eru að finna hér.




