Hættu- og varnaðarsetningar

H-setningar, hættusetningar:
H 1 Sprengifimt sem þurrefni
H 2 Sprengifimt við högg, núning, eld eða aðra hita- og neistagjafa
H 3 Mjög sprengifimt við högg, núning, eld eða aðra hita- og neistagjafa
H 4 Myndar mjög sprengifim málmsambönd
H 5 Sprengifimt við upphitun
H 6 Sprengifimt með og án andrúmslofts
H 7 Getur valdið íkveikju
H 8 Eldfimt í snertingu við brennanleg efni
H 9 Sprengifimt í blöndu með brennanlegum efnum
H 10 Eldfimt
H 11 Mjög eldfimt
H 12 Afar eldfimt
H 14 Hvarfast kröftuglega við vatn
H 15 Hvarfast við vatn og myndar afar eldfimar lofttegundir
H 16 Sprengifimt í blöndu með eldnærandi efnum
H 17 Getur valdið sjálfsíkveikju í andrúmslofti
H 18 Getur myndað eldfimar/sprengifimar blöndur af efnagufu og andrúmslofti við notkun
H 19 Getur myndað sprengifim efnasambönd (peroxíð)
H 20 Hættulegt við innöndun
H 21 Hættulegt í snertingu við húð
H 22 Hættulegt við inntöku
H 23 Eitrað við innöndun
H 24 Eitrað í snertingu við húð
H 25 Eitrað við inntöku
H 26 Mjög eitrað við innöndun
H 27 Mjög eitrað í snertingu við húð
H 28 Mjög eitrað við inntöku
H 29 Myndar eitraðar lofttegundir í snertingu við vatn
H 30 Getur orðið mjög eldfimt við notkun
H 31 Myndar eitraða lofttegund í snertingu við sýru
H 32 Myndar mjög eitraða lofttegund í snertingu við sýru
H 33 Hætta á heilsutjóni eykst við reglubundna notkun
H 34 Ætandi
H 35 Mjög ætandi
H 36 Ertir augu
H 37 Ertir öndunarfæri
H 38 Ertir húð
H 39 Hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni
H 40 Getur hugsanlega valdið krabbameini
H 41 Hætta á alvarlegum augnskaða
H 42 Getur valdið ofnæmi við innöndun
H 43 Getur valdið ofnæmi í snertingu við húð
H 44 Sprengifimt við upphitun í lokuðu rými
H 45 Getur valdið krabbameini
H 46 Getur valdið arfgengum skaða
H 48 Hætta á alvarlegu heilsutjóni við langvarandi notkun
H 49 Getur valdið krabbameini við innöndun
H 50 Mjög eitrað vatnalífverum
H 51 Eitrað vatnalífverum
H 52 Skaðlegt vatnalífverum
H 53 Getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni
H 54 Eitrað plöntum
H 55 Eitrað dýrum
H 56 Eitrað lífverum í jarðvegi
H 57 Eitrað býflugum
H 58 Getur valdið skaðlegum langtímaáhrifum í umhverfinu
H 59 Hættulegt ósonlaginu
H 60 Getur dregið úr frjósemi
H 61 Getur skaðað barn í móðurkviði
H 62 Getur hugsanlega dregið úr frjósemi
H 63 Getur hugsanlega skaðað barn í móðurkviði
H 64 Getur skaðað brjóstmylkinga
H 65 Hættulegt: getur valdið lungnaskaða við inntöku
H 66 Endurtekin snerting getur valdið þurri eða sprunginni húð
H 67 Innöndun gufu getur valdið sljóleika og svima
H 68 Getur valdið varanlegu heilsutjóni

Samtengdar H-setningar.

H 14/15 Hvarfast kröftuglega við vatn og myndar afar eldfimar lofttegundir
H 15/29 Hvarfast við vatn og myndar eitraðar og afar eldfimar lofttegundir
H 20/21 Hættulegt við innöndun og í snertingu við húð
H 20/22 Hættulegt við innöndun og inntöku
H 20/21/22 Hættulegt við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku
H 21/22 Hættulegt í snertingu við húð og við inntöku
H 23/24 Eitrað við innöndun og í snertingu við húð
H 23/25 Eitrað við innöndun og inntöku
H 23/24/25 Eitrað við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku
H 24/25 Eitrað í snertingu við húð og við inntöku
H 26/27 Mjög eitrað við innöndun og í snertingu við húð
H 26/28 Mjög eitrað við innöndun og inntöku
H 26/27/28 Mjög eitrað við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku
H 27/28 Mjög eitrað í snertingu við húð og við inntöku
H 36/37 Ertir augu og öndunarfæri
H 36/38 Ertir augu og húð
H 36/37/38 Ertir augu, öndunarfæri og húð
H 37/38 Ertir öndunarfæri og húð
H 39/23 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun
H 39/24 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni í snertingu við húð
H 39/25 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við inntöku
H 39/23/24 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun og í snertingu við húð
H 39/23/25 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun og inntöku
H 39/24/25 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni í snertingu við húð og við inntöku
H 39/23/24/25 Eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku
H 39/26 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun
H 39/27 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni í snertingu við húð
H 39/28 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við inntöku
H 39/26/27 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun og í snertingu við húð
H 39/26/28 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun og inntöku
H 39/27/28 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni í snertingu við húð og við inntöku
H 39/26/27/28 Mjög eitrað: hætta á alvarlegu varanlegu heilsutjóni við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku
H 42/43 Getur valdið ofnæmi við innöndun og í snertingu við húð
H 48/20 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun við langvarandi notkun
H 48/21 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni í snertingu við húð við langvarandi notkun
H 48/22 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni við inntöku við langvarandi notkun
H 48/20/21 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun og í snertingu við húð við langvarandi notkun
H 48/20/22 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun og inntöku við langvarandi notkun
H 48/21/22 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni í snertingu við húð og við inntöku við langvarandi notkun
H 48/20/21/22 Hættulegt: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku við langvarandi notkun
H 48/23 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun við langvarandi notkun
H 48/24 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni í snertingu við húð við langvarandi notkun
H 48/25 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni við inntöku við langvarandi notkun
H 48/23/24 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun og í snertingu við húð við langvarandi notkun
H 48/23/25 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun og inntöku við langvarandi notkun
H 48/24/25 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni í snertingu við húð og við inntöku við langvarandi notkun
H 48/23/24/25 Eitrað: hætta á alvarlegu heilsutjóni við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku við langvarandi notkun
H 50/53 Mjög eitrað vatnalífverum, getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni
H 51/53 Eitrað vatnalífverum, getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni
H 52/53 Skaðlegt vatnalífverum, getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni
H 68/20 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni við innöndun
H 68/21 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni í snertingu við húð
H 68/22 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni við inntöku
H 68/20/21 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni við innöndun og í snertingu við húð
H 68/20/22 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni við innöndun og inntöku
H 68/21/22 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni í snertingu við húð og við inntöku
H 68/20/21/22 Hættulegt: getur valdið varanlegu heilsutjóni við innöndun, í snertingu við húð og við inntöku

V-setningar, varnaðarsetningar.

V 1 Geymist á læstum stað
V 2 Geymist þar sem börn ná ekki til
V 3 Geymist á köldum stað
V 4 Geymist fjarri mannabústöðum
V 5 Geymist í ?. (vökvi tilgreindur af framleiðanda)
V 6 Geymist í ?. (óhvarfgjörn lofttegund tilgreind af framleiðanda)
V 7 Umbúðir skulu vera vel luktar
V 8 Geymist á þurrum stað
V 9 Geymist á vel loftræstum stað
V 12 Umbúðir skulu ekki vera þéttlokaðar
V 13 Má ekki geyma hjá matvælum og öðrum neysluvörum eða fóðri
V 14 Má ekki geyma hjá .? (efni tilgreind af framleiðanda)
V 15 Má ekki hitna
V 16 Haldið frá hita- og neistagjöfum - Reykingar bannaðar
V 17 Haldið fjarri brennanlegum efnum
V 18 Meðhöndlið og opnið umbúðir með varúð
V 20 Neytið ekki matar eða drykkjar meðan á notkun stendur
V 21 Reykingar eru bannaðar meðan á notkun stendur
V 22 Varist innöndun ryks
V 23 Varist innöndun lofttegundar/reyks/gufu/úða (framleiðandi gefur upp hvað á við hverju sinni)
V 24 Varist snertingu við húð
V 25 Varist snertingu við augu
V 26 Berist efnið í augu skal strax skola vandlega með miklu vatni og leita læknis
V 27 Farið strax úr fötum sem óhreinkast af efninu
V 28 Berist efnið á húð, skal strax þvo með miklu ?. (efni tilgreint af framleiðanda)
V 29 Má ekki losa í niðurfall
V 30 Hellið ekki vatni á eða í vöruna
V 33 Gerið varúðarráðstafanir gegn stöðurafmagni
V 35 Vörunni og umbúðum hennar skal fargað á tryggilegan hátt
V 36 Notið viðeigandi hlífðarfatnað
V 37 Notið viðeigandi hlífðarhanska
V 38 Notið öndunargrímu ef góð loftræsting er ekki fyrir hendi
V 39 Notið hlífðargleraugu/andlitsgrímu
V 40 Gólf og fleti, sem óhreinkast af efninu, skal hreinsa með?. (efni tilgreint af framleiðanda)
V 41 Varist innöndun reykst við bruna eða sprengingu
V 42 Notið viðeigandi öndunargrímu við svælingu/úðun/sprautun (framleiðandi gefur upp hvað á við hverju sinni)
V 43 Notið ?. við slökkvistarf (framleiðandi skal gefa upp nákvæma tegund slökkvitækis. Ef vatn eykur á hættuna skal bæta við: "Notið ekki vatn")
V 45 Leitið umsvifalaust læknis ef slys ber að höndum eða ef lasleika verður vart; sýnið umbúðamerkingarnar ef unnt er
V 46 Leitið umsvifalaust læknis eftir inntöku og sýnið umbúðir eða umbúðamerkingar
V 47 Geymist við hitastig sem ekki er hærra en ?°C (tilgreint af framleiðanda)
V 48 Halda skal vörunni rakri með ?. (efni tilgreint af framleiðanda)
V 49 Má aðeins geyma í upprunalegum umbúðum
V 50 Má ekki blanda með .? (efni tilgreint af framleiðanda)
V 51 Má aðeins nota á vel loftræstum stað
V 52 Notist ekki á stóra fleti í íbúðarhúsnæði eða öðrum vistarverum
V 53 Varist snertingu - aflið sérstakra notkunarleiðbeininga
V 56 Skilið efni og umbúðum á móttökustöð fyrir spilliefni
V 57 Notið viðeigandi umbúnað/umbúðir til að forðast mengun umhverfisins
V 59 Leitið til framleiðanda/birgis um upplýsingar varðandi endurnýtingu/ endurvinnslu
V 60 Efni og umbúðum skal fargað sem spilliefnum
V 61 Forðist losun út í umhverfið. Athugið sérstakar ráðleggingar/ öryggisleiðbeiningar
V 62 Varist að framkalla uppköst eftir inntöku. Leitið umsvifalaust læknis og sýnið umbúðir eða umbúðamerkingar
V 63

Verði slys vegna innöndunar skal viðkomandi færður í ferskt loft og hann látinn hvílast

V 64 Við inntöku, skolið munn með vatni (eingöngu ef viðkomandi er með meðvitund)

Samtengdar V-setningar:

V 1/2 Geymist á læstum stað þar sem börn ná ekki til
V 3/7 Geymist á köldum stað, umbúðir skulu vera vel luktar
V 3/9/14 Geymist á köldum og vel loftræstum stað en ekki hjá .? (efni tilgreint af framleiðanda)
V 3/9/14/49 Má aðeins geyma í upprunalegum umbúðum á köldum og vel loftræstum stað og ekki hjá .... (efni tilgreint af framleiðanda)
V 3/9/49 Má aðeins geyma í upprunalegum umbúðum á köldum og vel loftræstum stað
V 3/14 Geymist á köldum stað og ekki hjá ?. (efni tilgreint af framleiðanda)
V 7/8 Geymist á þurrum stað, umbúðir skulu vera vel luktar
V 7/9 Geymist á vel loftræstum stað, umbúðir skulu vera vel luktar
V 7/47 Geymist í vel luktum umbúðum við hitastig sem er ekki hærra en .?°C (tilgreint af framleiðanda)
V 20/21 Neytið hvorki matar né drykkjar meðan á notkun stendur. Reykingar bannaðar
V 24/25 Varist snertingu við húð og augu
V27/28 Berist efnið á húð skal strax farið úr fötum, sem óhreinkast hafa, og húðin þvegin strax með miklu?.. (efni tilgreint af framleiðanda)
V29/35 Má ekki losa í niðurfall, vörunni og umbúðum hennar skal fargað á tryggilegan hátt
V 29/56 Má ekki losa ekki í niðurfall: Skilið efni og umbúðum á móttökustöð fyrir spilliefni
V 36/37 Notið viðeigandi hlífðarfatnað og hlífðarhanska
V 36/37/39 Notið viðeigandi hlífðarfatnað, hlífðarhanska og hlífðargleraugu / andlitsgrímu
V 36/39 Notið viðeigandi hlífðarfatnað og hlífðargleraugu/andlitsgrímu
V 37/39 Notið viðeigandi hlífðarhanska og hlífðargleraugu/andlitsgrímu
V 47/49 Má aðeins geyma í upprunalegum umbúðum og við hitastig, sem ekki er hærra en .... °C (tilgreint af framleiðanda)
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið