Ný flokkun og merking
Í undirbúningi er að setja nýja reglugerð um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna sem koma mun í stað reglugerðar nr. 236/1990. Með nýju reglugerðinni verður komið á nýju flokkunarkerfi efna og efnablandna sem tekið verður upp í áföngum. Reglugerðin mun alfarið byggja á EB reglugerð nr. 1272/2008 sem þekkt er undir skammstöfuninni CLP (classification, labelling and packaging) þar sem tekið er upp samræmt flokkunar- og merkingarkerfi efna á heimsvísu.
Fleiri upplýsingar munu birtast á þessari síðu um undirbúning á nýrri reglugerð.
Útgáfa nýrrar reglugerðar
Áætluð útgáfa reglugerðar til innleiðingar EB-reglugerðar 1272/2008 mun tefjast af ófyrirséðum orsökum og verður ekki fyrr en síðar á árinu 2011.
| Reglugerð (EB) nr. 1272/2008 (1355 bls., 6,58 MB) | Á ensku | Á íslensku |
| Efnisyfirlit | |
skoða |
| Hættumerki | |
skoða |
| Hættuflokkar | |
skoða |
| Hættusetningar | skoða | skoða |
| Varnaðarsetningar | |
skoða |
| Viðvörunarorð | danger/ warning | hætta/ varúð |
| Efnalistar | 3.1 3.2 | ekki tilbúnir |
Íslenskar þýðingar verða settar inn í töfluna um leið og þær eru tilbúnar. Heildarþýðingu á reglugerðinni er lokið og verður hún birt innan skamms.
- Helstu upplýsingar um CLP (uppfært 20. ágúst 2010)
- Nánari skýringar á einstökum reglugerðarákvæðum (uppfært 8. desember 2010)
Breytingar á efnalistum
Núverandi efnalisti í fylgiskjali 1 við reglugerð nr. 236/1990 verður ekki uppfærður frekar. Búið er að samþykkja breytingar á listanum og verða breytingarnar aðeins birtar hér á ensku uns ný reglugerð tekur gildi. Hér er um að ræða uppfærslu á VI. viðauka í CLP reglugerðinni sem inniheldur flokkun skv. báðum flokkunarkerfunum. Í töflunni hér að ofan eru efnalistarnir uppfærðir með nýjustu breytingum, 3.1 er nýi listinn en 3.2 sá gamli. Upplýsingablað með nánari upplýsingar um breytingar á efnalistum.
Efnalistum í CLP reglugerð var síðast breytt með reglugerð (EB) nr. 790/2009 (breytingar á efnalistum í viðauka VI við CLP reglugerð) (439 bls., 8,42 MB)
Ný flokkun efna
Til þess að flokka efni samkvæmt forsendum CLP reglugerðar getur þurft að byggja á gögnum um hættueiginleika efna ef efnið hefur ekki verið flokkað áður.
Þjónustuborð
Umhverfisstofnun mun starfrækja sérstakt þjónustuborð í tengslum við innleiðingu CLP reglugerðar líkt og með REACH. Þessi síða er vísir að slíku þjónustuborði. Umhverfisstofnun mun vinna með Efnastofnun Evrópu og yfirvöldum í öðrum ríkjum við að afla upplýsinga og svör við innsendum spurningum.
Upplýsingar frá Efnastofnun Evrópu (ECHA):
- Almennar leiðbeiningar (á ensku)
- Leiðbeiningar um framkvæmd reglugerðar (á ensku, 6,37 MB)
- Spurningar og svör (á ensku), útgáfa 1.1.2 frá 19.10.2010
Bréf til hagsmunaaðila
Leiðbeiningar þær sem hér eru birtar eru túlkun Umhverfisstofnunar og eftir atvikum Efnastofnunar Evrópu eða annarra stofnana á ofangreindri reglugerð. Þær ber ekki að skilja sem bindandi fyrirmæli og aðeins reglugerðin hefur lagalegt gildi. Engin ábyrgð er tekin á hugsanlegum villum og mistúlkunum í leiðbeiningum og fræðslugreinum.
Leiðbeiningar og fræðsla um CLP
Efnastofnun Evrópu í Helsinki hefur gefið út leiðbeiningarit og svör við algengum spurningum varðandi CLP reglugerð. Hér eru tenglar á þetta efni allt á einum stað og er það allt á ensku. Nú er lögð á það sérstök áhersla að hafa aðgengilegar leiðbeiningar varðandi tilkynningar á flokkun efna til ECHA.
- Þjónustuborð (help desks) í öðrum EES ríkjum
- Almennar leiðbeiningar
- Leiðbeiningar um framkvæmd reglugerðar (6,37 MB)
- Almennar spurningar og svör (Q & A)
- Algengar spurningar og svör (FAQ) (24. nóvember 2010)
- Technical Questions and Answers on C&L NOTIFICATIONS (1. desember 2010)
Tilkynningar
Practical guide 7: How to Notify Substances to the Classification & Labelling Inventory (almennar leiðbeiningar)
- fyllt út beint á vefnum: How to create and submit a C&L notification using the REACH-IT online tool,
- IUCLID: How to Prepare and Submit a Classification and Labelling Notification Using IUCLID , kynningarbæklingur
- hóptilkynning: Manage your Group of Manufacturers or Importers
Engar leiðbeiningar eru til fyrir magntilkynningar (bulk notification) en nálgast má excel skjal fyrir magntilkynningu á vef Efnastofnunar Evrópu.
Leiðbeiningar fyrir REACH-IT, REACH-IT Industry User Manual:
- Part 1 Getting started with REACH-IT
- Part 6 Dossier submission
Upplýsingablöð
- Almenn atriði
- Um tilkynningar fyrir innflytjendur
- Um tilkynningar fyrir eftirnotendur (notendur í iðnaði og framleiðslu)
- Um tilkynningar vegna rannsókna og þróunar





