Varnaðarmerki
Fyrirmæli um varnaðarmerkingar eiturefna og hættulegra efna er í greinum 12 til 19 í reglugerð 236/1990 um flokkun, merkingu og meðferð eiturefna og hættulegra efna. Appelsínuguli liturinn í varnaðarmerkjunum er pantone 1575. Öll merkin (jpg myndir) eru með upplausn 300x300.
Ný hættumerki (hazard pictograms) verða tekin upp í áföngum í stað núverandi varnaðarmerkja. Þau skal nota á merkingar hreinna efna frá og með 1. desember 2010 og á efnablöndum frá og með 1. júní 2015. Á sama tíma verður notkun varnaðarmerkjanna hætt.
Varnaðarmerkin eru 10 fyrir eftirfarandi hættuflokka:
|
|
Sterkt eitur / Eitur. Efni sem hefur bráð eiturhrif í litlu magni. Einnig efni sem geta valdið alvarlegum og varanlegum heilsuskaða eins og krabbameini, ófrjósemi og skaðað starfsemi einstakra líffæra svo sem lungna, lifur og taugakerfis svo eitthvað sé nefnt. Dæmi: Metanól, asbest, blásýra, bensen, kreósót, formalín. Efnin má ekki selja á almennum markaði og aðeins til þeirra sem hafa fengið leyfi til notkunar eiturefna. Sterkt eitur (Tx) (298 KB) Eitur (T) (267 KB)
|
|
|
|
|
|
Hættulegt heilsu. Efni sem geta valdið bráðum eitrunum, haft heilsuspillandi áhrif til lengri eða skemmri tíma við endurtekna notkun. Einnig efni sem valda ofnæmi í öndunarfærum (astmi). Dæmi: Vörur með lífrænum leysiefnum (olíumálning, lökk og bón), varnarefni (illgresiseyðar, skordýra- og nagdýraeitur). Terpentína, etýlenglýkól, klóróform, ýmis efni unnin úr jarðolíu. Hættulegt heilsu (Xn) (217 KB)
|
|
|
Ætandi. Efni sem valda skaða á borð við bruna- og svöðusár við snertingu og særindi í öndunar- eða meltingarvegi við innöndun. Dæmi: Sterk hreinsiefni á borð við stíflueyða, uppþvottavéladuft. Saltsýra, brennisteinssýra, vítissódi, ediksýra (> 25%). Ætandi (C) (232 KB)
|
|
|
Ertandi. Efni sem valda ertingu eða sviða við snertingu eða innöndun. Einnig efni sem valda ofnæmi við snertingu við húð. Dæmi: Aseton, própanól, klór (hýpóklórít). Ertandi (Xi) (196 KB)
|
|
|
Afar eldfimt. Efni sem fuðra upp ef neisti kemst í þau. Á fyrst og fremst við um lofttegundir eins og própan og bútan en einnig allra eldfimustu vökvana á borð við bensín. Drifefni á úðabrúsum flokkast jafnan sem afar eldfim. Afar eldfimt (Fx) (216 KB)
|
|
|
Mjög eldfimt. Efni sem eru brenna auðveldlega ef neisti kemst í þau. Mjög eldfimt (F) (227 KB)
|
|
|
Sprengifimt. Efni sem eru varhugaverð vegna sprengihættu eða óstöðugleika og þola lítið hnjask. Sprengifimt (E) (392 KB)
|
|
|
Eldnærandi. Efni sem gera það að verkum að eldur magnast upp. Eldnærandi (O) (210 KB) |
|
|
Hættulegt umhverfinu. Efni sem eru skaðleg umhverfinu, t.d. ýmsum lífverum ekki síst í vatni og jarðvegi. Einnig efni sem brotna illa niður og safnast upp í lífverum og ósoneyðandi efni. Dæmi: Á sérstaklega við um efni sem ætlað er að drepa dýr, gróður og örverur eins og viðarvarnarefni og skordýraeitur. Hættulegt umhverfinu (N) (304 KB)
|
Hættumerkin níu
Hættumerkin eru níu talsins og hafa að miklu leyti sömu tákn og núgildandi varnaðarmerki nema GHS07 og GHS08 sem koma í stað krossins sem gefur til kynna að efni séu hættuleg heilsu eða ertandi. Enginn texti fylgir sjálfkrafa hættutáknunum eins og var með varnaðarmerkin nema að nú fylgir viðvörunarorð sem er annað hvort „hætta“ eða „varúð“.
GHS* hættumerkin er einnig hægt að nálgast hér.
|
|
GHS01. Sprengifim efni eru flokkuð á fleiri vegu en fyrr og er það til samræmis við reglur um flutningsumbúðir. Hættuflokkar: 2.1, 2.8, 2.15.
|
|
|
GHS02. Eldfim efni eru flokkuð niður í marga hættuflokka til samræmis við reglur um flutningsumbúðir. Fleiri eldfim efni verða flokkuð með þessu tákni en þau sem flokkuð voru sem mjög/afar eldfim.
|
|
|
GHS03. Eldnærandi efni verða flokkuð svipað og verið hefur. Hættuflokkar: 2.4, 2.13, 2.14.
|
|
|
GHS04. Nýtt tákn sem tákna á m.a. loft undir þrýstingi. Hættuflokkur: 2.5.
|
|
|
GHS05. Ætandi efni verða flokkuð svipað og verið hefur. Flokkunin verður tvískipt eftir áhrifum á málma og áhrifum á fólk. Hættuflokkar: 2.16, 3.2, 3.3.
|
|
|
GHS06. Hauskúputáknið verður áfram notað við flokkun efna en verður ekki eins algengt og nú. Táknið mun eingöngu eiga við um efni sem valda bráðum eitrunum. Hættuflokkur: 3.1.
|
|
|
GHS07. Táknið er notað yfir heilsuskaða og er vægara en (GHS08). Merkið kemur að nokkru leyti í stað flokkunarinnar „ertandi“ og að litlu leyti í stað „hættulegt heilsu“. |
|
|
GHS08. Táknið er notað yfir alvarlegan heilsuskaða og gefur til kynna annars konar hættu en hauskúpumerkið (GHS06). Merkið kemur að nokkru leyti í stað flokkunarinnar „hættulegt heilsu“ með krossmerkinu en einnig fyrir svokölluð CMR efni og efni sem valda skaða við endurtekna notkun og voru hauskúpumerkt (eitur og sterkt eitur). |
|
|
GHS09. Samsvarandi tákn og fyrr er notað yfir efni sem skaðleg eru umhverfinu. Forsendur fyrir notkun tákns breytast lítið. Hættuflokkur: 4.1.
|
*GHS stendur fyrir hnattsamræmt kerfi um flokkun og merkingu efna (Globally Harmonized System). Meira um GHS.
Út er komið varnarðarmerkjaplakatið í breyttu og bættu útliti. Hægt er að fá plakatið hjá Umhverfisstofnun að Suðurlandsbraut 24.
- Nánar um varnaðarmerkin
- Skýrsla um varnaðarmerktar efnavörur í grunnskólum (PDF)
- Skýrsla um varnaðarmerktar efnavörur í framhaldsskólum (PDF)
- Varnaðarmerkin (PDF)
- Leiðbeiningar um miðastærð varnaðarmerkja (PDF)
- Plakatið (PDF)
























