Efnavörueftirlit

Árið 2010 vann samstarfshópur Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga (HES) að verkefninu Samræming efnavörueftirlits - gerð handbókar og vefgáttar fyrir gagnaskil . Meginmarkmið verkefnisins var að samræma efnavörueftirlit á landinu með því að fræða eftirlitsaðila og stuðla þannig að samskonar eftirliti um allt land. Afurð verkefnisins var handbók um efnavörueftirlit sem var gefin út á rafrænu formi í október 2010 og vefgátt fyrir gagnaskil sem var tekin í notkun í febrúar 2011.

Handbókin á að vera leiðbeiningarrit fyrir heilbrigðisfulltrúa við eftirlit með efnavörum og stuðla þannig að samræmdu efnavörueftirliti í landinu. Einnig er handbókinni ætlað að vera fræðsluefni fyrir nýja heilbrigðisfulltrúa. Í henni er að finna á einum stað fróðleik, leiðbeiningar og verklagsreglur um efnavörueftirlit.

Markmiðið með vefgáttinni er að búa til upplýsingaveitu um efnavörueftirlit og safna þar á einn stað upplýsingum um eftirlit með efnavörum á Íslandi. Þar eiga heilbrigðisfulltrúar á öllu landinu að skrá upplýsingar um niðurstöður efnavörueftirlits í gagnabanka. Vefgáttin er einnig lokaður samskiptavettvangur fyrir eftirlitsaðila og þar er hægt að nálgast upplýsingar um eftirlit frá öðrum HES-svæðum. Gagnabankinn nýtist síðan Umhverfisstofnun við að taka saman upplýsingar um eftirlit með efnavörum sem senda skal til ESA.

Handbók um efnavörueftirlit

Eftirlit með merkingum efnavara 2011

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið