Salerniskröfur
Reglugerð 941/2002 um hollustuhætti kveður á um að viðskiptavinir/gestir veitingastaða skulu eiga greiðan aðgang að salerni, sbr. fylgiskjal 2 með reglugerðinni. Veitingastaður er skilgreindur sem staður þar sem framreiddur er matur og/eða drykkur til neyslu fyrir viðskiptavini/gesti á staðnum, þar með talin mötuneyti, skyndibitastaðir og söluskálar. Einnig er kveðið á um að starfsfólk veitingastaða skal hafa aðgang að sér snyrtingu. Reglugerð 585/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald kveður á um það sama, þ.e. viðskiptavinir/gestir veitingastaða skulu eiga greiðan aðgang að snyrtingu. Starfsfólk veitingastaða skal hafa aðgang að sérstakri snyrtingu. Lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir kveða á um skv. 19.gr. að Umhverfisstofnun skuli vinna að samræmingu heilbrigðiseftirlits í landinu og koma á samvinnu þeirra er að málum þessum starfa og skal í slíkum tilvikum m.a. sérstaklega gæta að því að fyrirbyggja skörun eftir því sem frekast er unnt. Til þess að stuðla sem best að þessu markmiði gefur stofnunin út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur um framkvæmdina sem heilbrigðisnefndum ber að fylgja.




