Raf- og rafeindatæki
Með breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, var komið á ábyrgð framleiðanda og innflytjanda á raf- og rafeindaúrgangi. Frá og með 1. janúar 2009 bera framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja ábyrgð á þeim raf- og rafeindatækjum sem framleidd eru hér á landi eða flutt inn hingað til lands.
Í ábyrgð framleiðenda og innflytjenda felst að þeir skulu fjármagna og tryggja meðhöndlun raf- og rafeindatækjaúrgangs að frátalinni söfnun til söfnunarstöðvar sveitarfélaga. Ábyrgð framleiðanda og innflytjenda nær til landsins alls án tillits til þess hvar varan er seld.
Merkja skal raf- og rafeindatæki með mynd af yfirstrikaðri sorptunnu, en merkið gefur til kynna að safna skuli raftækjum sérstaklega. Framleiðendur og innflytjendur ber að upplýsa kaupendur um að heimilt sé að skila raf- og rafeindatækjaúrgangi frá heimilum án greiðslu og að þeir ábyrgist meðhöndlun hans.
Breyting á lögum nr. 55/2003 var gerð til þess að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins, 2002/96/EB, um raf- og rafeindatækjaúrgang sem og tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins, 2003/108/EB um breytingu á tilskipun 2002/96/EB. Markmið tilskipunarinnar er að draga úr myndun raf- og raftækjaúrgangs, auka endurnýtingu og endurnotkun á slíkum úrgangi og vinna að aukinni umhverfisvitund allra sem koma að vörunni á lífsferli hennar.
Framleiðandi og innflytjandi er aðili sem, óháð þeirri sölutækni sem er notuð,
- framleiðir og selur raf- og rafeindatæki undir eigin vörumerki,
- endurselur raf- og rafeindatæki, undir eigin vörumerki, sem aðrir birgjar framleiða; endursöluaðilinn telst þó ekki vera framleiðandi ef vörumerki framleiðandans er á tækjabúnaðinum eins og kveðið er á um í i. lið, eða
- flytur raf- og rafeindatæki inn eða út úr landinu í atvinnuskyni.
Lög og reglugerðir
Raf- og rafeindatæki sem falla undir I. viðauka með lögum nr. 55/2003, sbr. I. viðauka B með reglugerð nr. 1104/2008.Raf- og rafeindatæki sem hönnuð eru til notkunar við rafspennu sem fer ekki yfir 1.000 volt þegar um er að ræða riðstraum og ekki yfir 1.500 volt þegar um er að ræða jafnstraum:
I. VIÐAUKI B
Raf- og rafeindatæki sem falla undir gildissvið reglugerðar þessarar
| Raf- og rafeindatæki | Vörur sem reglugerð þessi gildir um: | |
|
1
|
Stór heimilistæki | Stór kælitæki; kæliskápar; frystar; önnur stór tæki notuð til kælingar, varðveislu og geymslu matvæla; þvottavélar; þurrkarar; uppþvottavélar; eldunartæki; rafmagnsarnar; rafmagnshellur; örbylgjuofnar; önnur stór tæki notuð til eldunar og annarrar vinnslu matvæla; rafmagnshitunartæki; rafmagnsofnar; önnur stór tæki til að hita upp herbergi, rúm eða sæti; rafmagnsviftur; loftkælingar; annar viftu-, loftræsti- og loftkælingarbúnaður. |
|
2
|
Lítil heimilistæki | Ryksugur; teppahreinsarar; önnur hreingerningartæki; tæki sem notuð eru til að sauma, prjóna, vefa og til annarrar textílvinnslu; straujárn og önnur tæki sem notuð eru til að strauja, rulla og hirða um fatnað á annan hátt; brauðristar; steikarpönnur; kvarnir, kaffivélar og búnaður til að opna eða innsigla ílát eða umbúðir; rafmagnshnífar; hárskurðartæki, hárþurrkur, rafmagnstannburstar, rakvélar, nuddtæki og önnur tæki notuð til snyrtingar; klukkur, armbandsúr og búnaður til að mæla, gefa til kynna eða skrá tíma; vogir. |
|
3
|
Upplýsingatækni- og fjarskiptabúnaður | Miðlæg gagnavinnsla; stórtölvur; smátölvur; prenttæki; einka- og fartölvur (móðurborð, örgjörvi, mús, skjár og lyklaborð meðtalið); fistölvur; lófatölvur; prentarar; afritunarbúnaður; rafmagns- og rafeindaritvélar; vasa- og borðreiknivélar og önnur tæki og búnaður til að safna, geyma, vinna úr, setja fram eða miðla upplýsingum með rafrænum hætti; endabúnaður og -kerfi notanda; bréfasímar; fjarritar; símar; símasjálfsalar; þráðlausir símar; farsímar; símsvarar og önnur tæki eða búnaður til að flytja hljóð, myndir eða aðrar upplýsingar með fjarskiptatækni. |
|
4
|
Neytendabúnaður | Útvarpstæki; sjónvarpstæki; myndbandsupptökutæki; myndbandstæki; hi-fi-upptökutæki; magnarar; hljóðfæri og önnur tæki eða búnaður sem notaður er til hljóð- eða myndupptöku eða -flutnings, þ.m.t. merki eða annars konar tækni við dreifingu hljóðs og myndar en með fjarskiptum. |
|
5
|
Ljósabúnaður | Ljós; aflangir flúrlampar; háþrýstiúrhleðslulampar, þ.m.t. háþrýstinatríumlampar og málmhalógenlampar; lágþrýstinatríumlampar; annars konar ljós eða ljósabúnaður sem þjónar þeim tilgangi að dreifa ljósi eða takmarka ljós, að frátöldum glóðarperum. |
|
6
|
Raf- og rafeindatæki (að frátöldum föstum tækjum til iðnaðar) | Borar; sagir; saumavélar; búnaður til að renna, sverfa, slípa, fínpússa, saga, skera, klippa, bora, hola, gata, brjóta saman, beygja eða vinna timbur, málma eða önnur efni á svipaðan hátt; verkfæri til að hnoða, negla eða skrúfa eða fjarlægja hnoð, nagla og skrúfur eða til svipaðra nota; tæki til að logsjóða eða lóða eða til svipaðra nota; búnaður til sprautunar, dreifingar, úðunar eða annarrar meðhöndlunar með vökva eða loftkenndum efnum; sláttutæki eða önnur tæki til garðvinnu. |
|
7
|
Leikföng, tómstunda-, íþrótta- og útivistarbúnaður | Rafknúnar lestir og bílabrautir; handstjórnborð myndbandsleikja; skjáleikir; tölvur til hjólreiða, köfunar, hlaupa, róðrar o.s.frv., íþrótta- og útivistarbúnaður með raf- eða rafeindahlutum; spilakassar. |
|
8
|
Lækningatæki (að frátöldum ígræðsluvörum og vörum sem bera smit) | Búnaður til geislameðferðar; hjartalækningatæki; skilunarbúnaður, öndunartæki; búnaður til geislalækninga; búnaður á rannsóknarstofu til sjúkdómsgreiningar í glasi, greiningartæki; frystar; búnaður til frjóvgunarprófana; önnur tæki til að greina, fyrirbyggja, vakta, veita meðferð og ráða bót á sjúkdómum, meiðslum og fötlun. |
|
9
|
Vöktunar- og eftirlitstæki | Reykskynjarar; hitajafnarar; hitastillar; mælitæki, vogir- eða stillibúnaður fyrir heimili eða rannsóknarstofur; önnur vöktunar- og eftirlitstæki sem notuð eru í iðjuverum (t.d. á stjórnborðum). |
|
10
|
Sjálfsalar | Sjálfsalar fyrir heita drykki; sjálfsalar fyrir heita eða kalda drykki í flöskum eða dósum; sjálfsalar fyrir vörur í föstu formi; sjálfsalar til að skipta peningum; öll tæki sem afhenda sjálfvirkt hvers konar vörur. |
Framleiðendur og innflytjendur eiga að vera aðilar að skilakerfi, annað hvort sínu eigin skilakerfi eða sameiginlegu skilakerfi fleiri framleiðenda og innflytjenda.
Hlutverk skilakerfa er að:
- kosta geymslu raf- og rafeindatækjaúrgangs frá heimilum á söfnunarstöðvum sveitarfélaga,
- tryggja söfnun og móttöku á raf- og rafeindatækjaúrgangi frá söfnunarstöðvum sveitarfélaga og í samráði við sveitarfélögin, alls staðar á landinu,
- tryggja að raf- og rafeindatækjaúrgangur sé meðhöndlaður af atvinnurekstri sem hefur gilt starfsleyfi.
Umhverfisstofnun hefur gefið tveimur skilakerfum leyfi til þess að reka skilakerfi.
Skilakerfið RR-skil. Nánari upplýsingar um skilakerfið má finna á vefsvæði RR-skila.
Skilakerfið Samskil. Nánari upplýsingar um skilakerfið má finna á www.samskil.is.
Öllum framleiðendum og innflytjendum raf- og rafeindatækja skylt að vera skráðir skráningarkerfi innflytjenda og framleiðenda hjá Umhverfisstofnun. Framleiðendur og innflytjendur skulu við innflutning á raf- og rafeindatækjum tilgreina leyfisnúmer sitt í reit nr. 14 í tollskýrslu, frá og með 1.1.2012. Umhverfisstofnun úthlutar leyfisnúmerum í kjölfar skráningar í skráningarkerfið. Innflytjendur og framleiðendur geta falið því skilakerfi sem þeir eru aðilar að, að sjá um skráninguna í skráningarkerfi framleiðenda og innflytjenda, en það hefur í för með sér lægri kostnað en ef aðilar skrá sig beint sjálfir. Í því tilviki skal skilakerfið sjá um að skila einnig inn aðildarsamningi framleiðanda og innflytjandi til Umhverfisstofnunar. Gjald fyrir skráninguna er 6.000 kr og árgjald er 3.0000 kr, en sjái skilakerfi um skráninguna lækkar skráningargjaldið í 2.000 kr og árgjaldið í 1.000 kr.




