Reynsla fyrirtækja

Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki en til að hljóta Svansvottun þarf vara eða þjónusta að standast ströng viðmið Svansins. Eftirsótt er að láta vöru sína eða þjónustu bera þetta virta umhverfismerki og ber fjöldi vottanna þess glöggt merki, en yfir 6000 vörutegundir og þjónusta hafa verið Svansvottaðar.

Reynsla fyrirtækja sem hafa fengið vottun sýnir að þau hafa náð:

Rekstrarsparnaði

Til að fá Svansvottun þarf til að mynda að vinna markvisst að því að lágmarka orkunotkun, skilgreina vel innkaupin, takmarka efnanotkun og bæta úrgangsmeðhöndlun. Þetta leiðir nær undantekningarlaust til rekstrarsparnaðar þegar til lengri tíma er litið.

LandslagsverkBættri ímynd

Neytendur gera sífellt meiri kröfur um að geta valið vöru og þjónustu sem hefur minni umhverfisáhrif og er betri fyrir heilsuna. Svanurinn er vel þekkt umhverfismerki sem neytendur vita að tryggir gæði. Fyrirtæki geta því stolt auglýst að vara þeirra eða þjónusta hefur hlotið Svansvottun og sé því betri fyrir umhverfið og heilsuna. Þannig eykst samkeppnishæfni fyrirtækja með Svansvottun.

Betri þjónustu

Starfsmenn fyrirtækja sem fá Svansvottun taka þátt í aðlögunarferlinum og verða því yfirleitt áhugasamir, virkir og meðvitaðir þátttakendur í að bæta vöruna eða þjónustuna. Með því að fá Svansvottun er einnig verið að koma til móts við óskir æ fleiri viðskiptavina um að bjóða upp á vöru eða þjónustu sem er betri fyrir umhverfið og heilsuna.

Betri ferilstjórnun

Til að hljóta Svansvottun þurfa fyrirtæki sem sækjast eftir Svansvottun að skilgreina aðalferla sína, helstu umhverfisþætti og umhverfisáhrif þeirra og er það grundvöllur þess að hægt sé að framkvæma vottunarúttekt. Skýrar kröfur Svansins stuðla því að betri og markvissari ferilstjórnun.

Bættri frammistöðu í umhverfismálum

Svansvottun er trúverðug leið til að sýna fram á að fyrirtæki sé að vinna að umhverfismálum því að bætt frammistaða í umhverfismálum er óhjákvæmileg afleiðing vottunarferilsins. Fyrirtæki sem hlotið hafa Svansvottun hafa á hnitmiðaðan hátt sýnt fram á að verið sé að lágmarka umhverfisáhrif vöru eða þjónustu fyrirtækisins og Svansvottun gerir jafnframt kröfu um stöðugar umbætur.

Betri samkeppnishæfni í vistvænum innkaupum

Einfaldasta leiðin til að uppfylla umhverfisviðmið ríkisins skv. vistvænum innkaupum er að bjóða Svansvottaða vöru eða þjónustu. Ríki, stofnanir og opinber fyrirtæki eða sveitarfélög eru stórir innkaupaaðilar og því er til mikils að vinna að geta boðið vöru sem samræmist viðmið um vistvæn innkaup. Þegar búið er að Svansvotta vöru eða þjónustu er þá þegar búið að sýna fram á lágmörkun umhverfisáhrifa og skjalfestingu allra þeirra atriða sem leitast er eftir að hafa áhrif á með vistvænni innkaupastefnu ríkisins.
Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið