Svansmerkið
Svaninum er stjórnað af norrænni nefnd
Svaninum er stjórnað af sameiginlegri nefnd; Norrænu Umhverfismerkisnefndinni (NMN, Nordisk Miljömärkningsnämd). Nefndin mótar sameiginlega stefnu Svansins og ákveður fyrir hvaða vöruflokka og þjónustu skuli útbúa vottunarskilyrði. Í hverju landi er svo umhverfismerkisráð sem sér um stefnumótun í samræmi við norræna stefnu og þá stofnun sem hefur umsjón með daglegum rekstri Svansins.
Á Íslandi sitja í umhverfismerkisráði fulltrúar Umhverfisstofnunar, Samtaka verslunar og þjónustu, Landverndar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Samtaka iðnaðarins, Staðlaráðs Íslands, Samtaka ferðaþjónustu og Neytendasamtakanna. Fulltrúi Umhverfisstofnunar er formaður ráðsins.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með Svaninum á Íslandi
Á Íslandi sér Umhverfisstofnun um daglegan rekstur Svansins. Starfsmenn stofnunarinnar sjá um málefni Svansins á Íslandi, m.a. norrænt samstarf, ráðgjöf og aðstoð við íslensk fyrirtæki sem sækja um Svaninn, vottun og leyfisveitingu, kynningu á Svaninum ásamt skrásetningu á erlendum Svansmerktum vörum.
Það er markmið Umhverfisstofnunar að umhverfismerkingar muni í stórauknum mæli leiða innkaup almennings og fyrirtækja. Umhverfisstofnun vinnur að því að efla starfsemi Svansins á Íslandi, auka verulega hlutfall Svansmerktrar vöru og þjónustu á markaði og efla áhuga almennings og fyrirtækja á Svaninum og öðrum umhverfismerkingum.
Kröfur Svansins eru strangar og Svansmerkið er þannig trygging fyrir því að um sé að ræða vandaða vöru eða þjónustu. Þú getur treyst því.




