Viðmið

Viðmiðin eru mismunandi eftir vöru– og þjónustuflokkum

Til þess að áreiðanleiki Svansins sé sem mestur fer vottun á hverjum vöru- eða þjónustuflokki fram út frá sérhæfðum viðmiðum, en í dag eru til tæpir 70 mismunandi flokkar af vöru og þjónustu sem geta fengið vottun. Innan hvers flokks eru svo margar tegundir vöru og þjónustu en yfir 6000 vörutegundir bera í dag Svansmerkið og búið er að gefa út 2000 leyfi.

Viðmiðin eru unnin í samstarfi við sérfræðinga og fyrirtæki á sviðinu

Flæðirit

Þegar tekin er ákvörðun um hvort þróa eigi ný viðmið fyrir Svaninn er tekið mið af því hversu umfangsmikil umhverfisáhrif hljótast af umræddri vöru eða þjónustu frá vöggu til grafar, hvaða möguleikar eru á því að draga úr umhverfisáhrifum og hvort Svansmerkingin sjálf geti haft jákvæð áhrif á val neytenda og þróun innan vöru– eða þjónustuflokksins til langs tíma. Teymi óháðra sérfræðinga er sett saman til að móta viðmið Svansins fyrir hvern vöru– eða þjónustuflokk fyrir sig. Áður en ákvörðun um viðmiðunarreglur er tekin er auglýst eftir athugasemdum frá atvinnulífinu, umhverfisverndarsamtökum og yfirvöldum í opnu umsagnar– og samráðsferli.

Viðmiðin eru endurskoðuð á þriggja til fjögurra ára fresti

Endurskoðun á viðmiði hefst í raun um leið og fyrsta vottunin fer fram skv. viðkomandi viðmiði. Endurskoðunarferlið er að mörgu leiti svipað grunnvinnunni sem liggur að baki mótunar á nýju viðmiði, því fram fer rýni allra þátta sem liggja til grundvallar viðkomandi viðmiði. Sækja þarf um endurvottun þegar ný viðmið taka gildi.

Regluleg endurskoðun viðmiða tryggir stöðugar umbætur

Tilgangur endurskoðunar er að stuðla að stöðugum endurbótum, bæði á viðmiðunum sjálfum og framsetningu þeirra en einnig á því hvaða kröfur eru settar til grundvallar Svansmerkingu viðkomandi vöru eða þjónustu. Verkferli sífelldrar endurskoðunar leiðir af sér markvissar umbætur sem skilar sér í bæði traustu umhverfismerki og gæðum vottaðrar vöru og þjónustu.

Hægt er að Svansvotta tæpa 70 vöru og þjónustuflokka

Hér má nálgast öll viðmið Svansins á ensku og norðulandatungumáli.

Hér verða birtar upplýsingar um viðmið í opnu umsagnarferli.

Eins og er eru engin viðmið í opnu umsagnarferli.


Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit í samræmi við kröfur

Eftirlit með mengandi starfsemi fór í gegnum athugun IMPEL samtakanna.
Meira