Vottun
Þú getur fengið kynningarfund um Svaninn
Starfsmenn Svansins geta heimsótt fyrirtækið þitt og kynnt þér og þínum starfsmönnum nánar hvað felst í því að sækja um og vera með Svansvottun. Starfsmenn Svansins hjá Umhverfisstofnun kanna hvort sú vara eða þjónusta sem þú vilt láta votta tilheyri einhverjum þeirra vöruflokka sem viðmið Svansins ná yfir. Hafðu samband við okkur.
Þú sækir um Svaninn hjá Umhverfisstofnun
Þú sækir um Svansvottun og greiðir umsóknargjald skv. gjaldskrá Umhverfisstofnunnar, sem er vegna vinnu við meðferð umsóknarinnar. Þú getur nálgast umsóknareyðublaðið hér.
Þitt fyrirtæki vinnur að því að uppfylla kröfur og endurskoða innri ferli
Viðmiðunarreglur Svansins eru sérsniðnar að hverjum vöruflokki eða tegund þjónustu fyrir sig. Starfsmenn Svansins benda þér á hvar þú getur nálgast viðmiðunarreglur fyrir þína vöru eða þjónustu, en svo er komið að þér að kanna að hversu miklu leyti starfssemi þín uppfyllir viðmið Svansins og hverju þarf að breyta til að svo verði. Fyrir flestar vörur eða þjónustu er hægt að notast við samnorrænar vefgáttir til að halda utan um skrár og kerfismat við undirbúning vottunar. Þessi undirbúningsvinna tekur yfirleitt nokkra mánuði, allt eftir því hversu langt á veg fyrirtækin eru komin áður en ferlið hefst. Gerðar eru strangar kröfur um skjalfestingu og að hægt sé að fara sönnur fyrir því að búið sé að mæta viðmiðum Svansins.
Vottunaraðili kemur og tekur út framleiðslu vörunnar eða þjónustuna
Þegar þú og starfsmenn Svansins sammælast um að tímabært sé að fara í úttekt fara starfsmenn Svansins yfir umsóknina og öll gögn sem henni fylgja og ganga úr skugga um að forvinnunni sé lokið. Ákveðin er dagsetning fyrir úttekt, en þá fer úttektarmaður á staðinn og sannreynir að umsóknargögnin endurspegli í reynd framleiðslu vörunnar eða framkvæmd þjónustunnar.
Ef viðmið eru uppfyllt færð þú vottunina
Búast má við því að úttektarmaður setji fram einhverjar athugasemdir eftir fyrstu úttekt. Þegar brugðist hefur verið við þeim hlýtur varan eða þjónustan Svansvottun. Þú hefur gengið í gegnum strangt ferli og mátt nú stoltur nota Svansmerkið þér til framdráttar við kynningu vöru þinnar eða þjónustu.




