Viðmiðunartaxtar og verðlaun fyrir refi og minka
Við endurgreiðslu ríkisins til sveitarfélaga á hlutdeild ríkisins í verðlaunum fyrir unna refi skv. 4. mgr. 12. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og fyrir unna minka skv. 3. mgr. 13. gr. sömu laga, sbr. og 10. gr. reglugerðar nr. 437/1995 um refa- og minkaveiðar með áorðnum breytingum, skal árið 2010 miða við:
Fyrir refi - hámarksverðlaun
- Refir 7.000 kr. á dýr.
- Yrðlingar 1.600 kr. á dýr.
Fyrir minka
- Verðlaun fyrir unninn mink 3.000 kr. á dýr.
- Tímakaup ráðinna veiðimanna 800 kr./klst.
- Akstur 79 kr./km.
Endurgreiðsla ríkisins til sveitarfélaga
Refaveiða miðast að hámarki við 50% af ofangreindum verðlaunum eða af lægri upphæð sem sveitarfélög kunna að ákveða sem hæfileg verðlaun fyrir unna refi í sveitarfélaginu eftir því sem fjárveitingar á fjárlögum leyfa. minkaveiða miðast að hámarki við 50% af kostnaði við minkaveiðar, skv. ofangreindum viðmiðunartaxta eftir því sem fjárveitingar á fjárlögum leyfa.
Sveitarfélög skulu fyrir 25. október 2010 senda Umhverfisstofnun umsókn um endurgreiðslur.




