Urðunarstaður
Samanber 13. gr. reglugerðar nr. 738/2003 um urðun úrgangs og 10. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun.
Skjöl sem fylgja skulu umsókninni
- Uppdráttur af urðunarstaðnum.
- Upplýsingar um stöðu aðalskipulags á svæðinu og afrit af staðfestu deiliskipulagi fyrir urðunarstaðinn.
- Skýrsla um mat á umhverfisáhrifum skal fylgja umsókn ef urðunarstaðurinn er háður mati á umhverfisáhrifum. Í umsókn er heimilt að vísa til gagna í skýrslu um mat á umhverfisáhrifum.
- Lýsing á urðunarstaðnum (þ.á.m. lýsing á vatnajarðfræði- og jarðfræðilegum einkennum hans).
- Greinargerð þar sem fjallað er um áhrif losunar mengunarefna á umhverfið, þ.á.m. lýsing á uppruna, eðli og magni fyrirsjáanlegrar losunar út í andrúmsloft, vatn eða jarðveg. Fjalla skal um þær aðferðir sem nota á til að fyrirbyggja og draga úr mengun frá staðnum, t.d. aðferðir við hreinsun sigvatns. Í greinargerðinni skal koma fram hver viðtaki fyrir sigvatn er og hvernig ætlunin er að leiða hreinsað sigvatn í hann.
- Áætlun um rekstur, vöktun og innra eftirlit.
- Fullnægjandi starfsleyfistrygging umsækjanda, sbr. 17. gr. í reglugerð nr. 738/2003 um urðun úrgangs (þarf ekki að leggja fram sé sótt um starfsleyfi til urðunar á óvirkum úrgangi eingöngu).
- Áætlun um lokun urðunarstaðarins, aðgerðir í kjölfar lokunar og kostnað sem af þeim hlýst.
- Samantekt á almennu máli um þau atriði sem fram koma í umsókninni.
- Ef sótt er um undanþágur skv. kafla VI í reglugerð nr. 738/2003 um urðun úrgangs þarf rökstuðningur að fylgja umsókninni
Heimilt er að nýta eða styðjast við gögn sem aflað var fyrir fyrri umsókn um starfsleyfi fyrir sama urðunarstað. Það er umsækjanda að safna þeim gögnum saman og senda með nýrri umsókn um starfsleyfi.
Umhverfisstofnun bendir á að viðbragðsáætlun og ábyrgðartrygging vegna mögulegs bráðamengunartjóns skulu liggja fyrir áður en starfsleyfi er gefið út, sbr. 16. og 18. gr. laga nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda.




