Söluleyfi varnarefna
Hér með sæki ég undirrituð/aður um leyfi, sem veitir heimild til þess að selja varnarefni í X, A eða B hættuflokkum, í samræmi við 6. grein laga nr. 52/1988 um eiturefni og hættuleg efni, sem heimiluð hafa verið af umhverfisráðuneyti og fengið skráningu á viðeigandi lista skv. 3. grein reglugerðar nr. 50/1984 um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og til útrýmingar meindýra.
Umsækjandi skal hafa kynnt sér reglur um útlát varnarefna og þær skyldur sem sölustaður þarf að uppfylla, áður en sótt er um leyfið.
Umsókninni skal fylgja vottorð frá Vinnueftirliti ríkisins, yngra en tveggja ára, um skoðun á eiturefnageymslum og aðbúnaði starfsfólks og vottorð frá heilbrigðiseftirliti í viðkomandi sveitarfélagi um starfsemi og starfshætti fyrirtækisins.




