Svanurinn

Svanurinn er

  • Umhverfismerki
  • Vottun fyrir vörur og þjónustu
  • Opinbert merki með trúverðuga bakhjarla
  • Betri fyrir umhverfið og heilsuna

Svanurinn nær yfir alla helstu umhverfisþætti

  • orku– og hráefnanotkun
  • losun mengandi eða hættulegra efna
  • umbúðanotkun flutning
  • meðhöndlun úrgangs

Traust og trúverðugt merki

  • Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna
  • Svansmerkið er leiðandi umhverfismerki í heiminum
  • Vörumerkið hefur mjög sterka markaðsstöðu

Hvaða viðmið þarf að uppfylla?

  • Viðmiðin eru mismunandi eftir vöru– og þjónustuflokkum
  • Viðmiðin eru unnin í samstarfi við sérfræðinga og fyrirtæki á sviðinu
  • Viðmiðin eru endurskoðuð á nokkurra ára fresti
  • Regluleg endurskoðun viðmiða tryggir stöðugar umbætur
  • Hægt er að Svansvotta tæpa 70 vöru og þjónustuflokka

Skipulag Svansins

  • Svaninum er stjórnað af sameiginlegri, norrænni nefnd
  • Umhverfisstofnun hefur umsjón með Svaninum á Íslandi

Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki. Strangar kröfur Svansins um lágmörkun umhverfisáhrifa tryggja að Svansmerkt vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Með því að velja Svansmerkta vöru og -þjónustu stuðlar þú að betra umhverfi og bættri heilsu frir þig og þína, án þess að fórna gæðum. 

Í dag eru til Svansskilyrði fyrir tæplega 70 mismunandi flokka vöru og þjónustu. Yfir 6.000 vöru- og þjónustumerki bera nú merki Svansins. 


Strangar kröfur á öllum lífsferli vörunnar - fyrir umhverfið

Kröfur Svansins ná yfir alla helstu umhverfisþætti þjónustu eða framleiðslu vöru svo sem orku– og hráefnanotkun, losun mengandi eða hættulegra efna, umbúðanotkun, flutning og meðhöndlun úrgangs. 

Svanurinn gerir skýrar kröfur til Svansmerktrar vöru og má þar nefna að Svansmerkt dömubindi verða að innihalda lífrænt ræktaðan bómull, Svansmerkt garðhúsgögn er eingöngu smíðuð úr viði frá sjálfbærri skógrækt og gerðar eru strangar kröfur um lita– og efnameðhöndlun á Svansmerktum fatnaði. Það sama á við um þjónustuaðila en Svansmerkt hótel, ræstingarþjónustur eða veitingastaðir eru búin að lágmarka heildar umhverfisáhrif frá sinni starfssemi og innleiða orkusparnað, vistvæn innkaup og betri lausnir við úrgangsmeðhöndlun.


Til eru Svansskilyrði fyrir mjög margar vörur og jafnvel er hægt að votta eldsneyti. Svansmerkt eldsneyti má ekki vera jarðefnaeldsneyti og þar að auki þarf að gera grein fyrir uppruna hráefnanna sem notuð eru í eldsneytið og framleiðsla þess má ekki vera of orkufrek.

Umhverfisvænir hjólbarðar?

Öll framleiðsla og neysla hefur í för með sér einhver neikvæð umhverfisáhrif. Það má spyrja sig af hverju verið er að veita hjólbörðum Svansvottun því varla er framleiðsla eða notkun hjólbarða mjög umhverfisvæn? Þegar þú kaupir þér Svansmerkta hjólbarða þá er Svansvottunin staðfesting á að þeir eru besta valið fyrir umhverfið og heilsuna. Framleiðsluferli þeirra hefur verið aðlagað að viðmiðum Svansins um hjólbarðaframleiðslu en þau taka til margra þátta. Hjólbarðarnir þurfa meðal annars að hafa lítið viðnám til að draga úr eldsneytisnotkun og vera hljóðlátir og öruggir. Efnainnihald, framleiðsluaðferðir og líftími hjólbarðanna þurfa einnig að vera í samræmi við kröfur Svansins. 


Í dag eru til Svansskilyrði fyrir tæpa 70 mismunandi flokka vöru og þjónustu og yfir 6000 vörutegundir og þjónusta ber nú merki Svansins.

Strangar kröfur um efnainnihald - fyrir heilsuna

Svanurinn auðveldar neytendum að velja vöru sem eru öruggari en margar sambærilegar vörur á markaðnum. Svanurinn gerir strangar kröfur um efnainnihald og lágmörkun á notkun hættulegra efna við þjónustu og framleiðslu vöru. Má þar nefna að við framleiðslu á Svansmerktum hreinlætis– og snyrtivörum má ekki nota ofnæmisvaldandi ilmefni og engin þekkt krabbameinsvaldandi og hormónatruflandi efni.

Svansmerktar vörur eru sjálfsagt val fyrir foreldra því sett eru sérstaklega ströng viðmið til vöru sem er ætluð börnum svo sem bleyjur, leikföng, fatnað og hreinlætisvörur. Börn eru viðkvæmari fyrir áhrifum ýmissa óæskilegra efna sem notuð eru við framleiðslu og því er notkun þeirra lágmörkuð. Gerðar eru mjög strangar kröfur um hráefna í Svansmerktum bleyjum, ekki má nota krabbameinsvaldandi og hormónatruflandi eldvarnarefni á leikföng, fatnaður skal vera úr lífrænt ræktuðum eða sambærilegum trefjum og Svansmerkt sólarvörn, tannkrem og sápa ætluð börnum má ekki innihalda ilmefni. Svansmerktar vörur og þjónusta eru því með þeim öruggustu í sínum vöruflokki.

Strangar kröfur - fyrir gæðin

Svanurinn gerir kröfu um virkni og gæði vottaðrar vöru eða þjónustu. Til að fá Svansmerkið þarf virkni að vera jafn góð eða betri en hjá annarri sambærilegri vöru eða þjónustu. Þannig þarf til að mynda Svansmerkt þvottaefni að þvo hreint við lágt hitastig, húsgögn verða að þola strangar prófanir og kröfur eru gerðar um gæði prenthylkja.

Mikil áhersla er lögð á endingu og þol vörunnar. Sumar margnota vörur líkt og hleðslurafhlöður og örtrefjaklútar eru klárlega betri fyrir umhverfið en sambærilegar einnota vörur en aðeins að því gefnu að ending þeirra sé góð. Því er gerð mikil krafa um gæði Svansmerktra hleðslurafhlaðna og örtrefjaklúta og ítarlegra prófana krafist.

Á síðustu áratugum hefur vöruúrval og framleiðsluhraði aukist í vestrænum samfélögum og virðist þetta stundum skila sér í skemmri endingartíma vörunnar. Svanurinn vill sporna við þeirri þróun. Gæði eru ekki látin víkja fyrir kröfum um umhverfisáhrif og heilnæmi. Þvert á móti er lögð mikil áhersla á að Svansvottuð vara eða þjónusta standist samskonar gæðaprófanir og gerðar eru til svipaðrar vöru og þjónustu. Þetta skilar sér beint í auknum gæðum og betri vöru fyrir neytendur.

Hvernig verða viðmiðin til?

Til þess að vara eða þjónusta geti hlotið Svansvottun verður Norræna Umhverfismerkjanefndin að hafa mótað kröfur fyrir viðkomandi vöru- eða þjónustuflokk. Þegar tekin er ákvörðun um hvort þróa eigi ný skilyrði fyrir Svaninn er tekið mið af því hversu umfangsmikil umhverfisáhrif hljótast af umræddri vöru eða þjónustu frá vöggu til grafar, hvaða möguleikar eru á því að draga úr umhverfisáhrifum og hvort Svansmerkingin sjálf geti haft jákvæð áhrif á val neytenda og þróun innan vöru– eða þjónustuflokksins til langs tíma.

Teymi óháðra sérfræðinga mótar skilyrði Svansins fyrir hvern vöru– eða þjónustuflokk fyrir sig. Áður en ákvörðun um skilyrðin er tekin er auglýst eftir athugasemdum frá atvinnulífinu, umhverfisverndarsamtökum og yfirvöldum í opnu umsagnar– og samráðsferli. Eftirlitsaðilar Svansins fylgjast með því að kröfum sé framfylgt og er það gert með heimsóknum til leyfishafa, prufutökum og öðrum leiðum er þykja nauðsynlegar hverju sinni. Hert er á kröfunum með á þriggja til fjögurra ára fresti svo Svansmerktar vörur og þjónusta eru í stöðugri þróun.

Áreiðanleiki Svansins felst ekki síst í því að Svanurinn gerir strangar kröfur sem allar vörur og þjónusta innan sama geira þurfa að uppfylla til að hljóta leyfi til að nota merkið. Svansmerkið er því skilaboð til neytenda um að traust úttektarferli hafið farið fram, að varan eða þjónustan standist kröfur þróaðar af óháðum sérfræðingum og sé því betri fyrir umhverfi og heilsu.

Rekstur Svansins

Svanurinn er ekki rekinn í hagsmuna- eða hagnaðarskyni. Rekstur Svansins er að hluta fjármagnaður með opinberum fjárframlögum og að hluta með umsóknar– og árgjöldum. Svaninum er stjórnað af sameiginlegri nefnd; Norrænu Umhverfismerkisnefndinni (NMN, Nordisk Miljömärkningsnämd). Nefndin mótar sameiginlega stefnu Svansins og ákveður fyrir hvaða vöruflokka og þjónustu skuli útbúa vottunarskilyrði. Í hverju landi er svo umhverfismerkisráð sem sér um stefnumótun í samræmi við norræna stefnu og þá stofnun sem hefur umsjón með daglegum rekstri Svansins.

Umhverfismerkisráð

Á Íslandi sitja í umhverfismerkisráði fulltrúar Umhverfisstofnunar, Samtaka verslunar og þjónustu, Landverndar, Nýsköpunarmiðstöðvar, Samtaka iðnaðarins, Staðlaráðs Íslands, Samtaka ferðaþjónustu og Neytendasamtakanna. Fulltrúi Umhverfisstofnunar er formaður ráðsins. 

Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun hefur umsjón með daglegum rekstri Svansins. Starfsmenn stofnunarinnar sjá um málefni Svansins á Íslandi, m.a. norrænt samstarf, ráðgjöf og aðstoð við íslensk fyrirtæki sem sækja um Svaninn, vottun og leyfisveitingu, kynningu á Svaninum ásamt skrásetningu á erlendum Svansmerktum vörum.

Það er markmið Umhverfisstofnunar að umhverfismerkingar muni í stórauknum mæli leiða innkaup almennings og fyrirtækja. Umhverfisstofnun vinnur að því að efla starfsemi Svansins á Íslandi, auka verulega hlutfall Svansmerktrar vöru og þjónustu á markaði og efla áhuga almennings og fyrirtækja á Svaninum og öðrum umhverfismerkingum.

Kröfur Svansins eru strangar og Svansmerkið er þannig trygging fyrir því að um sé að ræða vandaða vöru eða þjónustu. Þú getur treyst því.  

Ársskýrsla Svansins á norðurlöndum

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun

Umhverfisstofnun hvetur foreldra til að nota Svaninn sem hjálpartæki við vöruval.
Meira um verkefnið