Dýraverndaráð

kasmir1

Dýraverndaráð

Dýraverndarráð starfar samkvæmt 17. gr. laga nr. 15/1994 um dýravernd.

Hlutverk dýraverndarráðs er að vera umhverfisráðherra og umhverfisstofnun til ráðgjafar um dýraverndarmál. Um stefnumótandi mál, svo sem setningu reglugerða, skal leita umsagnar dýraverndarráðs.

Í Dýraverndarráði sitja fjórir menn, tilnefndir af Bændasamtökum Íslands, Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, Dýralæknafélagi Íslands og Sambandi dýraverndunarfélaga á Íslandi.

Fulltrúar ráðsins eru: Sigurborg Daðadóttir, formaður, tilnefnd af Dýralæknafélagi Íslands. María Björk Sigurðardóttir, tilnefnd af Hinu íslenska náttúrufræðifélagi. Ólafur R. Dýrmundsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands og Linda Karen Gunnarsdóttir, tilnefnd af Dýraverndarsambandi Íslands.

Umhverfisstofnun leggur ráðiinu til ritara. Hægt er að senda tölvupóst á Dýraverndarráð á netfangið: dyravernd@ust.is

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.