Efni og efnavörur

Vidarvorn

Framleiðsla á gagnvörðu timbri án eiturefna

Framleiðsla á gagnvörðu timbri án eiturefna.

Vinsælt er að nota ýmsar viðartegundir í sólpalla, grindverk o.fl. í garðinn. Hins vegar endist timbur illa og fúnar ef það er ekki varið með fúaverjandi efnum. Þessi efni innihalda mjög eitruð efni eins og arsen, króm og kopar. Þau tvö fyrrnefndu voru bönnuð nú í vor en viðarvarnarefni sem notuð eru í dag innihalda enn yfirleitt koparsambönd.

Nú hefur norska fyrirtækið Wood Polymer Technologies þróað nýja aðferð til að gagnverja timbur, en einu efnin sem notuð eru á timbrið eru unnin úr sykurrófum og maísmjöli. Þessi aðferð tryggir viðlíka góða endingu og þau viðarvarnarefni sem yfirleitt eru notuð. Wood Polymer Technologies hefur nú fengið vottun norræna umhverfismerkisins Svansins á framleiðslu sína, Viðarvörnsjá nánar á www.ecolabel.no



 

Nýjar fréttir og greinar um efnavörur

Dag.GreinFlokkurUppruni
30.08.2010 Verður efnið sem þú notar löglegt eftir 1. desember? Fréttir  
24.08.2010 Kynningarráðstefna um sæfiefni Forsíðugreinar  
24.08.2010 Nýr efnalisti Undirefni  
16.07.2010 Um REACH Um REACH  
16.07.2010 Áhrif á Íslandi Áhrif á Íslandi  
16.07.2010 Nánar um REACH Ítarefni  
16.07.2010 Þarft þú að skrá? Þarft þú að skrá?  
                       






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasíðurheimasíður - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.