02. febrúar 2012
Fyrsti fundur vatnasvæðanefndar

Þriðjudaginn 31. janúar síðastliðinn var haldinn
fyrsti fundur með vatnasvæðisnefnd. Um er að ræða kynningarfund á vegum
Umhverfisstofnunar fyrir fulltrúa í vatnasvæðisnefnd á vatnasvæði 4.
Til bakaÁ fundinum kynnti
stofnunin lög og reglugerðir um nýja stjórnsýslu vatnamála, áfanga- og
verkáætlun um gerð fyrstu vatnaáætlunar (sem er í opinberri kynningu), hlutverk
vatnasvæðisnefndar og skipulag vinnu og funda hjá nefndinni.
Kynningarfundur
verður haldinn þriðjudaginn 7. febrúar fyrir fulltrúa í vatnasvæðisnefnd á
vatnasvæði 3, nánar tiltekið á Hvolsvelli. Kynningarfundir eru einnig ráðgerðir
fyrir fulltrúa í hinum tveimur vatnasvæðisnefndunum, þ.e. á vatnasvæði 1 og
vatnasvæði 2, en dagsetningin hefur ekki verið ákveðin.
Nánari upplýsingar um stjórn vatnamála á vefsvæði Umhverfisstofnunar.




